Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Síða 29

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Síða 29
JOHS. HANSEN-KONGSLÖV KONGURINN með TANNPlNUNA \ I Ævintýri Nl. Nú var honum ekkert að vanbúnaði. Hann setti upp húfuna, alla fituga, og hljóp niður þrepin í einu hendings- kasti. Allt fólkið í húsinu þaut út við þennan undirgang. Svo hlammaðist hann brokkandi út allar götur til hallar kóngs. Svo var mikið óðagotið á hon- um, að hann rak um koll prest og herforingja, kerlingu og dá- fríða yngismey, sem urðu á vegi hans. Hann kærði sig koll- óttan um það. Það sem á reið fyrir honum var það, að eng- inn yrði fyrri til en hann. Og nú var hann kominn að hallardyrunum. Verðir kóngs gláptu á hann og dyravörður- inn spurði ruddalega: - Hvaða erindi skyldi hann eiga? Já, hvorki meira né minna en það, að hann ætlaði sér að lækna kónginn! - Humm! Já. Það var nú ekki svo vitlaust. En annars var ekki útlit fyrir, að hann hefði mikið vit á því. Jú, stúdentinn hélt því hik- laust fram að hann gæti það, ef sér væri bara leyfð innganga — því fyrr, því betra. Dyravörðurinn muldraði eitthvað í skeggið um óðagot og hávaða; en loks spurði hann, hver það væri, sem hann ætti að segja til. - Kirkjurotta stúdent, svar- aði stúdentinn. - Fágætt nafn er það. Aldrei hef ég nú heyrt það fyrri. Gakktu inn! sagði dyravörð- urinn og fylgdi honum inn eft- ir hallargöngunum. Hjartað tók að berjast í brjósti stúdentsins. Hann sá kóngsdótturinni bregða fyrir á bak við hurð, sem stóð í hálfa gátt. Þegar kóngur heyrði, að maður væri úti fyrir, sem ætl- aði að lækna hann, þá setti hann upp kórónuna, tók veld- issprotann sér í hönd og stakk ríkiseplinu undir hönd sér, stefndi allri konungsfjölskyld- unni og öllum ráðherrunum á sinn fund, til þess að það skyldi vera sjónarvottar. Alltaf leið kóngi jafnilla. Hann gekk friðlaus um gólfið með aðra höndina á ,,feita“ vanganum. - Gerið svo vel! Kom inn! Stúdentinn gekk inn og leit á alla þessa tignu sveit með hjartslætti miklum. En hon- um virtist kóngsdóttir kinka kolli til sín, og þá óx honum aftur hugur. - Hvert er nafn yðar? spurði kóngur. - Kirkjurotta! svaraði stúd- entinn. - Ha, ha! Nú get ég ekki ann- að en hlegið. En hver er þá staða yðar? - Stúdent. - Humm! Fátækleg staða er það — si sona. — En hverjir eru foreldrar yðar? - Ég á enga foreldra. - Hvað segið þér? Eigið þér enga foreldra? Aldrei hef ég nú heyrt annað eins fyrri! - Foreldrar mínir eru dánir, yðar hátign, svaraði stúdent- inn hvatlega til skýringar. - Nú, jæja — si sona. En minn góði herra stúdent — ha — Kirkjurotta, þér þykist geta losað mig við þetta — foj! — bannsett kvalræði sem fljót- ast. - I einni svipan, yðar há- tign. Það er ég sannfærður um. Stúdentinum óx hugur. Kóngsdóttirin kinkaði svo ynd- islega kolli til hans, það sá hann svo glöggt. - Sannfæring er sérlega góð- ur mannkostur, mælti kóngur, mér fellur vel við þá, sem hafa sannfæringu; þeir eru svo fáir, sem hana hafa. Hann veit, hvort sem er, hvað hann á að fá í kaup. En ekki má krukka í mig, né stinga á mér, og öllu meðalagutli hræki ég út úr mér — si sona. Og mistakist honum, þá verður hann óðara settur í svartholið. - Jæja, yðar hátign, til er ég. - Ágætt, ágætt, ljómandi gott. Allir standi upp, meðan þessi hátíðlega athöfn fer fram! HEIMILISBLAÐIÐ [209]

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.