Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 34

Heimilisblaðið - 01.12.1954, Qupperneq 34
inn yfir smásjánni og reyndi að ná valdi yfir tilfinningum sínum. Að lokum sagði hann: - Til allrar hamingju er þetta ekki alvarlegt! Þetta er venjuleg ígerð. Hún sýndi engin svipbrigði en dró djúpt andann. - Segirðu satt? spurði hún. - Já, innan mánaðar verðurðu heilbrigð aftur. I fyrstu leit hún út eins og hún œtlaði að falla í yfirlið, en svo rétti hún úr mögrum líkama sínum. Hún hafði jafnað sig. - Við erum í Guðs hendi. Ég er honum þakklát fyrir, að hann hef- ur tekið þennan þunga kross frá mér. Ég hef haft nóg að bera samt um dagana. Hann hlustaði á hana og sagði ákafur, til þess að réttlæta sig: - Mamma! Það hlýtur að vera annað en tilviljun, að þú skulir vera komin hingað. Það er eins og örlögin hafi leitt okkur saman . . . Hann þagnaði allt í einu og dró þungt andann, en hélt síðan'áfram. - Er það einskis virði fyrir þig, að ég skuli hafa getað hjálpað þér hér í dag? - Það hefði einhver annar getað gert líka. Hann hrökk í kút. - Ætlarðu þá aldrei að taka mig í sátt ? Hér er ég í miklu áliti í einni helztu háskólastofnun lands- ins. Og það er ég, sem hef hjálpað þér. Ég stefni að miklu takmarki. En þú ert full beiskju í minn garð, þótt ég geti rétt þér hjálparhönd og læknað þig. Hún horfði á hann, án þess að skipta litum. - Mér finnst ekki mikið til um það, sem þú segir mér, og ennþá minna er ég hrifin af því, sem ég sé. Þú lítur ekki hraustlega út — og virðist heldur ekki vera ham- ingjusamur. Þú ert grár og gugginn. Enni þitt er hrukkótt, og þú ert að byrja að hærast í vöngunum. Þú ert ekki ánægður með lífið, það er eins og þú leitir einhvers, sem þú finnur ekki. - En ég skal finna það, sagði hann ákafur. Ég er ennþá á leiðinni, en þegar takmarkinu er náð, þarf ég ekki annað en að rétta fram hendurnar og taka það, sem mér þóknast. - Hvað gagnar það ? Hún setti gamla sjalið yfir herðar sér. Þrjátíu shillingar á viku eða þrjátíu þús- und á ári ? Skiptir það máli, hvort maður gengur í fínum fötum eða heimaunnum vaðmálsfötum ? Það er mest um vert, ef fólk horfir á eftir þér á götu og segir: Þarna fer góður og gegn maður! Hann ’ var að búa sig undir að svara, þegar barið var að dyrum og Heddle kom inn. - Það er maður hér frammi, dokt- or Stirling, sem þér verðið að sjá. Hann þarf nákvæmrar rannsóknar. Getur einhver okkar hjálpað yður hér ? Duncan hristi höfuðið. Hann neyddist til að slíta samtalinu við móður sína. - Ég verð að fara núna, sagði hann við hana, en það er ekkert að óttast. Hann náði í pappír og skrifaði í flýti: Komdu heim til mín klukk- an sex í kvöld. Ég bý í Princes Cres- cent. Þú dæmir mig rangt. Mig lang- ar til þess að þér þyki vænt um mig og sért hreykin af mér . . . Af göml- um vana skrifaði hann undir: Dun- can Stirling, M.D. Um kvöldið beið Duncan lengi eftir henni, en hún kom ekki. Þá datt honum í hug samkvæmið hjá Margréti, og hann var feginn að geta flúið frá ömurlegum hugsun- um sínum. 9. kapítuli. Margrét kemur enn við sögu. LUKKAN var rúmlega tíu, þeg- ar hann gekk upp tröppurnar að húsi Overtons í einu fínasta hverfinu í Edinborg. Það var fjöldi gesta í stofunni. Margrét flýtti sér á móti honum. - Duncan! kallaði hún. Þú veizt ekki, hvað mér þykir vænt um að hitta þig! Hann reyndi að svara henni í glöðum tón. - Það er nú ekki mikil hætta á því, að þú saknaðir mín innan um allt þetta fólk. - Jú, þú getur verið viss um það, sagði hún áköf. Honum fannst hún vera eirðar- laus, en þó var hún aðlaðandi, en allt öðru vísi en áður fyrr. - Þú þekkir víst flest fólkið, sagði hún. Hann leit lauslega í kringum sig og þekkti samstundis í kringum þrjátíu manns. Overton stóð með glas í hendi í gestahópi. Þarna voru mætt frú Inglis, Lee prófessor, Scott ofursti, Heddle læknir, Anna Geisler og margir læknar frá öðrum sjúkra- húsum og nokkrir lögfræðingar. - Nú skaltu ekki fórna mér lengri tíma, Margrét, sagði hann. Ég get séð um mig. I sama bili komu fleiri gestir, og um leið og hún fór frá honum, sagði hún lágum rómi: - Við fáum tæki- færi til þess að tala saman seinna. Scott ofursti, sem ræddi við ffú Inglis, kinkaði vingjarnlega kolli til hans. Það var eins og eitthvað þjak- aði hann. Hann var orðinn mjög fyrirgengilegur. Hann hafði lagt all- ar eigur sínar í raforkuverið, sem brátt var fullbúið, en það var eins og hann óttaðist, að þessi ráðstöf- un kynni að vera hæpin. - Gott kvöld, doktor Stirling. Þér lítið hraustlega út. - Hafið þið heyrt síðustu frétt- irnar? spurði frú Inglis. Lee próf- essor hefur gefið í skyn, að hann ætli að draga sig í hlé. Duncan áttaði sig ekki strax á því, hvað hún meinti, en svo var eins og ljós rynni upp fyrir honum. - Er þetta heyrinkunnugt ? - Já. Að þrem mánuðum liðnum mun nýr maður stjórna Wallace- stofnuninni. En þar sem ég er kona þess manns, sem er í stjórn stofn- unarinnar, er víst ekki rétt, að ég ræði um líklegan eftirmann Lees prófessors. Hann vissi við hvern hún átti. Það var alkunnugt, hve mjög hún dró taum Overtons, einkum eftir að hann kvæntist frænku hennar. Hún brosti sigri hrósandi, þegar hún sá, hversu Duncan lét sér fátt um finn- ast. - Ég vissi, að yður mundi þykja vænt um að heyra þetta, doktor Stirling! Hún leiddi ofurstann á burt með sér, og Duncan kom allt í einu auga á Önnu, sem sat skammt frá hon- [214] HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.