Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1960, Page 33

Heimilisblaðið - 01.12.1960, Page 33
Verka. Sjálfur Satan getur breytt göfug- ^annlega...“ „Sá, sem rekur ógöfugt erindi, getur ekki rekið annað göfugt við hlið þess,“ Sagði Rinaldo. „Svei því, sem þú segir,“ sagði Alta- Verde reiðilega. „Hafa ekki gleðitár runn- ^ þín vegna? Hafa menn ekki beðið fyr- lr þér ? Hafa menn ekki beðið þér bless- unar?“ „En menn vissu ekki, að þeir báðu ræn- lngja blessunar ...“ Altaverde svaraði enn reiðari en áður: ”^á skaltu tyfta sjálfan þig, biðja, fasta °g láta höggin dynja á baki þínu. Þangað undan blæðir. Þú skalt verða þagnar- ^unkur og stama fram áminninguna: ^emento mori, minnstu þess, að þú átt að deyja. Hvers vegna viltu gera lítið úr góðverkum þínum?“ „Ö, að ég hefði verið kyrr hjá geitun- llru mínum. Það segi ég þér, að ég get nvorki hrósað mér af verkum mínum né Slaðzt yfir þeim. Þótt vera kunni einhver góðverk þar á meðal, þá voru þau illu ^iklu fleiri, og einhvern tíma mun ég Peirra vegna verða leiddur á aftökustað- lnn,“ sagði Rinaldo og andvarpaði á ný. „Kemst þú brátt þangað?“ „Ö, Altaverde. Hver veit sína hinztu stund?“ „Enginn. Það er líka reglulega gott, því að annars gætum við ekki sofið rólega, en það er þó það allra helzta á þessari Jörð “ „Sofið rólega?“ „Það get ég. Góða nótt. Láttu eldinn ekki deyja. Vektu mig, ef þú vilt sofa.“ Hann vafði um sig yfirhöfninni óánægð- Ur á svip og sneri baki við Rinaldo. Brátt vpr hann steinsofnaður, en Rinaldo tók kVarinn sinn, fór að spila og syngja. Allt í einu fór einn hinna árvökru víg- Unda, sem lágu við eldinn að gelta. Alta- Verde spratt á fætur og þreif byssuna. Hualdo hafði ekki alveg lokið við hrópið: „Hver er þar?“ er hann fékk merki um, að einn félaga þeirra væri að koma. Hund- aruir þögnuðu, og Nikolo kom í ljós. „Hvað er um að vera?“ spurði Alta- verde. „Ég átti að segja ykkur, að heyrzt hefði í bjöllum múldýra í fjarlægð," svaraði Nikolo. „Á þessari nóttu?“ „Einhver hlýtur að hafa villzt.“ „Þið liggið samt allir enn við í kofan- um?“ „Að sjálfsögðu — nema Giambattista og Pietro, sem hafa farið að njósna. Hinir þrjátíu halda allir hópinn." „Er Girolamo með ykkur?“ spurði Alta- verde. „Já, hann er farinn að hlakka til að sjá múldýrin.“ Nikolo brosti við tilhugsun- ina. „Því trúi ég.“ Rinaldo tók fram í fyrir honum og spurði: „Altaverde! Hvenær ferðu til hans? Þú þekkir Girolamo og veizt, að gætni er ekki hans sterka hlið.“ „Ég er sammála.“ „Láttu Eintio koma til mín. Ég ætla að bíða hans hér.“ „Ágætt,“ sagði Altaverde. „Og ef þið getið komizt hjá blóðúthell- ingum . . . .“ „Já, ef þið getið,“ samsinnti Altaverde. „Foringi! Ætlarðu að verða hérna einn eftir?“ spurði Nikolo kvíðafullur. „Einn, þangað til Eintio kemur.“ „Sofðu þá stutta stund,“ sagði Alta- verde. „Ef ég get. Skiljið hundana hér eftir.“ „Góða nótt,“ sagði Altaverde. „Sjáumst heilir,“ hrópaði Nikolo. Þeir héldu burt. Rinaldo kastaði spreki á eldinn, lagðist fyrir undir tré einu og dró yfirhöfnina upp yfir höfuð. Uppi yfir honum æddi stormurinn, og það snarkaði hátt í þurrum viðnum í eldinum. „Æ,“ andvarpaði hann, „verndið mig allir dýrlingar og góðir englar. Þannig bað ég áður fyrr með trúnaðartrausti, þegar ég lagðist til svefns. Nú get ég hvorki beð- ið né sofið. Ó, að ég gæti grátið.“ Þá ruku hundarnir upp. Hann kastaði yfirhöfninni af sér, spratt á fætur og þreif skammbyssuna. Hundarnir hlupu fnæs- andi að manni einum. Rinaldo kallaði á þá, gekk nær og sá öldung með hvítt hár og skegg í brúnum fötum standa frammi Hrimilisblaðið 253

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.