Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 25

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 25
um viðurkenna það, að eini möguleikinn er í því fólginn, sem ég get munað úr for- tíðinni en sú falska Alice veit ekkert um.“ Jean yppti öxlum kæruleysislega. „Þar sem þessi Alice hans dr. Pauls er yfirlýstur geðsjúklingur og erfitt reynist að fá áreiðanleg vitni frá síðustu árum, þá eru horfurnar allt annað en bjartar. En ekki megum við örvænta. Við verðum að leggja mál okkar fram eins vel og hægt er, Þótt naumur tími sé til undirbúnings.“ Jean leit á úrið. „Klukkan er að verða tíu,“ sagði hann. »Ég held við höfum öll gott af rækilegri hvíld — þannig er mér farið að minnsta kosti. Ég hef herbergi með húsgögnum í sama húsi og veitingastofa Pére Michaud er í Rue de l’Arbe Vert rétt hjá lögfræði- heild háskólans, og ég heiti Poteau, en alls ekki Monier. Eigum við að hittast á morg- un til að útkljá málið?“ „Það vil ég,“ sagði Alice. „Annars hef ég eina athugasemd á takteinum ...“ bætti hún við íbyggin á svip, „og þið megið alls ekki andmæla mér. Við þrjú stöndum sam- an á hverju sem gengur sem einn maður. Ef einhver auðævi koma aðvífandi, þá skiptum við þeim eins og systkini!“ „Vitleysa!“ sagði Monier. „Nei, ég meina það!“ „Þá fer ég nú að halda, að þér séuð með lausa skrúfu,“ sagði Henry með ákefð. >.Munið þér ekki eftir því, að ég sagði vesa- hngs konunni í gær að gæta peninganna betur?“ Jean Monier hafði ekki heyrt þessa at- burðar getið, svo að Henry varð að segja honum allt af létta, á meðan Alice brá sér ^ra til þess að snurfusa sig. Monier fannst Saman að sögunni, en hann bjóst ekki við, að laganna vörður mundi líta hana sömu augum. í*au héldu aftur til Parísar. Henry og Alice fóru á gistihúsið og buðu hvort öðru Sóða nótt í anddyrinu. Alice fór strax upp, eu Henry ætlaði út til að ná í eitthvert síð- óegisblað. Kalt var í veðri, þótt á júnínótt væri. Stjörnurnar skinu á bláum himni. Ekki Voru margir á ferli í Rue Chaumont, þeg- ar Henry ráfaði eftir gangstéttinni vinstra Aeimilisblaðið megin götunnar. Hann var með hendur í vösum og blístraði fyrir munni sér. Hann var nærri kominn út á hornið á Boulevard des Italiens, þegar bíll ók fram á hann, beygði inn að gangstéttinni og stanzaði við hlið hans. Það var fallegur, svartur Renault-bíll, sem ung stúlka stýrði. Um leið og bíllinn staðnæmdist, lauk stúlk- an upp hurðinni að ekilssætinu og í ljós komu fallegir kvenmannsfótleggir í silki- sokkum. „Afsakið,“ sagði ekillinn með ein- kennilegum raddblæ í rómnum. „Hafið þér séð lögregluþjón hér í nágrenninu? Eða vitið þér kannski, hvar lækni eða sjúkra- hús er hér að finna? Ökumaðurinn er orð- inn veikur og liggur þarna í aftursætinu með undarlegan glampa í augum.“ Henry reyndi ósjálfrátt að sjá aftur í bílinn, en hann gat ekkert séð vegna myrk- urs og sneri sér því aftur að stúlkunni í ekilssætinu. Hann gat ekki gert sér í hug- arlund, hvernig hún liti út vegna þess, hve birtan var lítil, en beinvaxnir fótleggir var eiginlega það eina, sem sást. Hatturinn skyggði á andlitið, en dýr og glæsileg loð- kápa huldi veruna frá höku niður á kné. Á höndunum var hún með hvíta hanzka. „Nei, ég hef engan lögregluþjón séð,“ sagði Henry og virtist reiðubúinn að veita alla hjálp, sem á hans valdi stóð. „Ég get kannski fengið upplýsingar á gistihúsi því, sem ég dvelst á. Ég ætla rétt að skreppa inn til að spyrja um það.“ „Þakka yður kærlega fyrir. Það er mjög vingjarnlegt af yður,“ var honum svarað með stillilegri röddu, sem bar keim af út- lendum málblæ. „Auðvitað frá Ameríku,“ sagði Henry við sjálfan sig, en stúlkan hallaði sér svo- lítið út og sagði: „Komið inn hinum megin. Ég skal aka yður til gistihússins.“ Þangað var nú ekki langur spölur, en Henry var augsýnilega hrifinn af svo góð- um félagsskap sem hér var um að ræða, svo að hann flýtti sér inn í bílinn. En varla var hann þar kominn, þegar þessi stóri Renaultbíll rann hljóðlaust áfram í staðinn fyrir að snúa við til gistihússins. Henry var þegar ljóst, að ökuferðinni var ekki lokið í bráð. 201

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.