Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 27

Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 27
„Hamingjan góða! Var þetta allt og sumt ? Og þetta hafið þér með ærinni fyrir- höfn verið að reyna að spyrja um,“ mælti Gaby brosandi. ,,Þér getið ekki ímyndað yður, hve það var skoplegt.“ Hún lauk upp dyrunum og leit á klukku þar frammi. Klukkan er alveg að verða hálf sjö — og Það að kvöldi að sjálfsögðu.“ ,,Og hvaða kvöldi?“ spurði Henry og talaði nú greinilegar en áður. „Það er nú önnur saga. Ég veit ekki, hvort þér megið vita það, en ég skal at- huga það.“ Henry varð að þola kvalir kvíðans, með- hún var burtu. Þótt hann væri þrótt- htill, þá var hugsunin skýr og honum voru fyllilega ljósar allar aðstæður í sambandi við arfsmál Alicear. Á þriðjudaginn hafði hann ákveðið að hitta Jean og neyta há- degisverðar með honum hjá Prunier. Þá setluðu þeir að ráðgast um málið. En nú var kannski komið miðvikudagskvöld. Ef nú væri miðvikudagur, þá væru aðeins Þrír dagar, þangað til þessi örlagaríki iaugardagur, 26. júní, rynni upp. Þá skyldi Alice vera frjáls og með fullu viti fyrir allra augum, ef hún ætti að komast yfir arfinn. Og hvernig var nú komið fyrir Alice? Gm það þorði Henry ekki einu sinni að hugsa, því að hefði dr. Paul vitað, hvar hann átti að leita að Henry, þá hlyti hann einnig að vita, hvar Alice væri niður kom- in. Gaby kom aftur broshýr á svip. „Jú, ég segja yður það,“ sagði hún. Klukkuna vantar nú tuttugu mínútur í átta föstu- hagskvöldið 25. júní!“ „Föstudagur!“ hrópaði Henry upp yfir sig. Stúlkan skellihló. „Já, það er föstudag- m'.“ sagði hún. „Þér tókuð fjörkipp við Þessa fregn. Hvernig líður yður núna?“ Henry svaraði henni með fáum velvöld- um orðum. „Og ég skyldi stökkva fram úr ^úminu, ef ég hefði orku til,“ sagði hann að lokum, „og kyrkja yður.“ ..Skammizt yðar nú! Þetta var ekki fal- eSt af yður. Ég er alltof falleg, til þess að ^ElMlLISBLAÐIÐ ég verði kyrkt.. .“ Hún strauk með ann- arri hendi um sléttan, hvítan hálsinn. „Alveg rétt!“ sagði Henry. „Það ætti ekki að kyrkja yður, heldur höggva yður í fallöxinni." „Gaby hristi höfuðið og brosti. „Hvar er dr. Paul?“ spurði Henry. „Hann kemur bráðum til að líta á yður. Verið nú þolinmóður. Langar yður til að vita meira?“ Henry hikaði andartak. Var það vitur- legt að spyrja þessa slóttugu kvensnift, hvar Alice væri niður komin, þótt hún hefði óbeint gefið til kynna, að hún vildi svara? En hann brann í skinninu eftir að vita um hana. „Hvar er ungfrú Kerlon?“ „Ó, hún er á öruggum stað,“ sagði stúlk- an. „Þér fáið víst að sjá hana bráðum. Ég vona annars að þér séuð mér ekki reiður vegna þess, sem gerðist hér um daginn? Þér skiljið, að ég hlýddi aðeins fyrirmæl- um, sem mér voru gefin.“ „Þér skuluð ekki vera með þessar afsak- anir. Þér fáið það endurgoldið og það ríf- lega af hendi látið.“ Gaby hló hressilega og settist í hæginda- stól öðrum megin við rúmið. „Þér þurfið ekki að ómaka yður með þessa peninga, sem þér ætluðuð að senda,“ sagði hún ertnislega. „Annars trúi ég því svo sem, að þér hefðuð sent þá, ef ég hefði í raun og veru látið yður flýja. Ég fékk dágóða umbun hjá dr. Paul eftir þennan „flótta“, en nú er ég búin að eyða mest öllu.“ „Til hvers hafið þér notað peningana? Keypt yður þennan ægilega hatt, sem þér voruð með í Renaultbílnum hér um kvöld- ið?“ „Féll yður hann ekki? Já, það var eitt af því, sem ég keypti og segja má, að hann hafi gert sitt gagn. Annars finnst mér, að þér hefðuð átt að kannast við fótleggina á mér. Þér hafið ekki séð svo lítið af þeim upp á síðkastið. Ég fékk líka fallegan silf- urref í staðinn. Allar stúlkur verða að vera vel úr garði gerðar á þessum tímum.“ „Þér þurfið nú ekki góðan útbúnað þangað sem þér lendið,“ sagði Henry. „En segið mér, hvernig þér náðuð Alice?“ 203

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.