Heimilisblaðið - 01.09.1963, Blaðsíða 37
Við, sem vinnum
sneiðunum. Ofan á hvern banan er látið
vínber. Þeyttum rjóma er sprautað allt í
kring um ananassneiðarnar.
eldhússtörfin
Nú er haustið komið og þá fara nú hús-
Wæðurnar að verða viljugri að baka og
yfirleitt duglegri við öll innanhússtörf.
Hér eru nokkrar góðar uppskriftir af
góðum ábætum.
Ávaxtaábætir
3 appelsínur 200 gr vínber
3 bananar 2 dl rjóml
2 epli 100 gr hnetur
200 gr rúsínur
Hreinsið ávextina og skerið í smábita
og blandið hökkuðum hnetum saman við
ásamt sykri. Látið blönduna í smáskálar.
Skreytið með rjóma. Látið heilt vínber í
hverja skál til skrauts.
Eanana- og appelsínuábætir
4 bananar 100 gr sykur
4 appelsínur 100 gr möndlur
200 gr gráfikjur 3 dl rjómi
50 gr kakó
Hýðið er tekið af appelsínunum og bön-
onunum og ávextirnir skornir í sneiðar.
Gráfíkjurnar eru einnig skornar niður.
^öndlurnar eru afhýddar, hakkaðar og
látnar út í kakó og sykurblöndu. Bananarn-
lr» appelsínurnar og kakóblandan er látið
Gl skiptis í skál. Rjóminn er þeyttur og
látinn ofan á. Skreytt með appelsínustykkj-
um og gráfíkjum.
Bananar í smjördeigi
Sm jördeig :
200 gr smjör
4 msk. sykur
10 möndlur
1 egg
300 gr hveiti
K r e m :
5—7 bananar
250 gr flórsykur
2 tsk. kakó
vatn, 10 möndlur
2 dl rjómi
Smjörið og sykurinn hrærist vel og út
í það er bætt möndlunum, þeyttu eggi og
hveiti. Látið deigið vera á köldum stað.
Fletjið deigið síðan út og skerið það í
5—7 stykki, mátulega stór til að leggja
banan innan í. Leggið afhýddan banan á
hvert stykki og vefjið vel utan um hvern
banan og lokið fyrir endana. Leggið „pyls-
urnar“ á vel smurða plötu og bakið við
meðalhita. Þegar kökurnar eru kaldar er
kakókremi smurt á og möndlum stráð yfir.
Þeyttur rjómi er borinn fram með kök-
unum.
Ananas í hlaupi
(10—12 pers.)
1 stór dós ananas
safl úr 1 sítrónu
1 stór appelsína eða grape
eplasafi eða hvítvín (1 1 vökvi
ásamt ananassafanum)
200—250 gr sykur
2 eggjahvítur
10—12 plötur matarlím
Safi, eggjahvítur, sykur og vel þvegið
matarlím er látið í pott og suðan látin
koma upp á því og stöðugt hrært í á meðan.
Þá er látið lok yfir og látið standa í ca.
5 mín., síðan er það síað. Skolið stórt
kökumót eða nokkur smámót og látið an-
anassneiðar í og hellið hlaupinu yfir.
Bananakerti
6 ananassneiðar
6 bananasneiðar og nokkur vínber
2 dl rjómi
ið
Ananassneiðunum er raðað á fat. Sting-
afhýddum banan í hvert gat á ananas-
hEimilisblaðið