Heimilisblaðið - 01.09.1963, Side 36
hafði þurrkað sér á skeggi geitarinnar
um munn og hendur, lagðist hann fyrir til
svefns og lét geitina eiga sig. Þegar mað-
urinn steig upp úr baðinu og sá, að matur-
inn var horfinn, þóttist hann fljótlega sjá
á skeggi geitarinnar, hvort þeirra væri
sá seki, — enda fékk geitin alla hirting-
una í sinn hlut.
Hundur nokkur var vaninn á það af
húsbónda sínum að fara í sendiferðir.
Einn góðan veðurdag, er hann gekk með
körfuna um hálsinn, fulla af kökum, varð
harln fyrir grimmilegri árás tveggja
hunda, og á meðan hann tókst á við annan
þeirfa fór hinn að éta kökurnar. Sá sem
fyrir árásinni varð, komst brátt að raun
um, að átökin gátu engan veginn bjargað
kökunum, þær myndu alla vega verða étn-
ar uþp. Þegar hann var kominn á þessa
skoðun, fannst honum hann sjálfur eiga
eins' mikinn rétt á þeim og hinir tveir.
Enda hætti hann að slást við hundinn, an-
aði rakleitt að körfunni og slokraði sem
skjótast í sig því sem eftir var.
tryggir
fullkomíð
hreinlæti
FORN KÍNVERSK SPEKI
Það má kremja fólk með ofurþunga tung-
unnar.
Friður undir stráþaki kofans — það er
hamingja.
Feitur köttur er óefað þjófur.
Láttu öndina klæðast hverju sem hún kýs*
en nef hennar verður þó ætíð flatt.
Engin nál er oddmjó í báða enda.
Steinljónið hræðist ekki regn.
Sérhver verður að berja sína eigin bumbu
og róa eigin fari.
Sá lærði er auðlegð þjóðarinnar.
Api getur setið hásæti.
Gáfaður maður viðurkennir vilja himins-
ins.
Gott lyf hefur beiskast bragð.
Gerðu áætlanir til ársins að vori til.
Bústaðaskipti
Þeir, sem flutt hafa
búferlum og eiga
líf- og brunatryggingu
hjá oss, eru vinsamlega
beðnir að tilkynna
bústaðaskiptin hið
fyrsta.
Ingólfsstræti 5
Sími 11700.
212
HEIMILISBLAÐ15