Heimilisblaðið - 01.09.1963, Page 40
Það hefur snjóað svo mikiö umhverfis litla húsið
þeirra Kalla og Palla, að það er ekki hægt að vera úti.
Bangsarnir litlu sitja því inni í stofunni sinni í leiðu
skapi. „En hvað það er ergilegt, að það skuli halda
áfram að snjóa,1' þrumar Kalli geðvonzkulega. „Já, og
það er heldur ekki hægt að renna sér á sleða, hann
sekkur bara í snjóinn. Þá dettur Kalla í hug að nota
tennisspaðana þeirra í staðinn fyrir þrúgur. Þetta var
agæt hugmynd. Þeir skiptust á að ganga á snjóþrúg'
unum og draga sleðann. Þannig fengu þeir sér góð®
sieðaferð.
Kalli og Palli eru orðnir hrein plága fyrir umhverfið
vegna útvarpstækjanna, sem þeir fengu sér. Þegar Kalli
fer í bað tekur hann tækið með sér og þegar Palli er að
gera hreint glymur tónlistin og hann syngur stundum
með. Hin dýrin eru öll fjarska geðill yfir hávaðanum og
dag nokkurn, þegar Kalli og Palli eru í skógarferð,
halda dýrin tónleika, sem alveg ætla að æra bangs®
og þegar þeir kvarta, svara þau: „Þarna heyrið P
hve hræðilegt er að hlusta allan daginn á út'Víjll .r.
ykkar." Kalli og Palli verða fjarska vandræða
Já, auðvitað verður að taka tillit til samborgaran
þegar maður hlustar á útvarp.