Heimilisblaðið - 01.12.1966, Side 36
SKRAUT:
Krem er búið til úr 1 eggi
1 msk. sykri
1 msk. kartöflumjöli
2 dl rjóma
% dl þeyttum rjóma
hálfir valhnetukjarnar.
Hrærið smjör og sykur vel saman og
bætið eggjarauðunum út í einni í einu og
hrærið vel á milli. Blandið saman val-
hnetumassanum, hveiti og lyftidufti og
hrærið út í deigið. Látið að síðustu stíf-
þeyttar eggjahvíturnar út í. Bakið kök-
una í ca. 50 mín. í 200° hita.
Hrærið eggi, sykri og kartöflumjöli sam-
an og látið rjómann út í og hrærið stöð-
ugt í. Hrærið þeyttan rjómann út í kælt
kremið og sprautið því síðan á kökuna,
og látið að síðustu hálfa valhnetukjarna á
kökuna.
Ilnfluknka ini'A ;i|irikósiisultu:
50 gr. smjör
100 gr. flórsykur
2 egg
100 gr. fínmalaðir hnetukjarnar
100 gr. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 dl. rjómi
SKRAUT:
Aprikósusulta með ofurlitlu matarlími,
græn vínber og linetukjarnar.
Hrærið smjör og sykur vel saman og
hrærið eggjunum út í, einu í einu. Blandið
hnetumassa, hveiti og lyftidufti saman og
hrærið saman við deigið ásamt rjómanum.
Bakið kökuna í ca. 1 klst. í 175° hita. —
Skreytið kælda kökuna með volgri apri-
kósusultu, sem ofurlítið matarlím er látið
út í. — Skreytið með grænum vínberjum
og hnetukjörnum, þegar kakan er alveg
köld.
Svo óska é'j ykkur öllum góöra og
gleðilegra jóla!
256
H E I M I LI S B L A Ð I 5