Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 3

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 3
Rennibrautarferð gegnum Sviss EFTIR J. D. RATCLIFF Járnbrautarnetið í Sviss er í rauninni ein samfelld, risavaxin rennibraut 5000 kílómetra löng. Þar í landi er daglegt brauð ;‘ð sjá lestirnar skjótast undir yfirborðið líkt og moldvörpur eða þeytast yfir gilja- Ji'ög eins og fjallageitur. Tveir þriðju hlutar Sviss eru himinhá fjöll sundur skorin af gínandi djúpum skörðum og gjám. Það krefst ævintýra- legrar þekkingar og hagleikni að móta flutningakerfi í slíku umhverfi, sem geti annað fólks- og vöruflutningum í allar átt- ii' -— jafnvel yfir 3-4000 metra háa tinda, sem kostað hafa ótal fjallgöngumenn lífið. Þetta létu svissneskir uppfinningamenn og verkfræðingar sér þó ekki vaxa í augum. Þegar brattinn varð of mikill fyrir „venju- legar“ járnbrautir, gerðu þeir svokallaðar hmnhj ólabrautir, sem geta aukið hæðina um allt að 48%. Síðan fundu þeir upp strengbrautir og svifbrautir, en þar sem þeir loksins gáfust upp fyrir brattanum, gerðu þeir sér lítið fyrir og hjuggu lóð- i'étt göng í fjöllin til að koma þar fyrir lyftum! Brattasta tannhjólabraut í heimi vind- ur sig upp leiðina um Mt. Pilatus í nánd við Luzern. Öldum saman var þetta svæði bannheilagt í augum fjallgöngumanna. Yf- irvöldin töldu, að eins konar þjóðsagna- drekar héldu vörð um það, og auk þess hefðist þar við sjálfur Pontíus Pilatus aft- urgenginn, og ekki væri þess vert að ónáða hann og eiga yfir höfði sér reiði hans. En með tímanum komust þó drekar og aftur- göngur úr tízku, en ferðamannastraumur- inn gerðist þeim mun áleitnari. Richard Wagner klöngi-aðist þarna upp, og Vikt- oría drottning lét teyma sig þangað á múl- dýri — aðrir, sem ekki voru eins djarfir, létu fjallabúana innfæddu bera sig í burð- arstólum. Síðar var gerð þarna tannhjóla- braut. Hún er svo brött, að engu er lík- ara en maður aki beint upp í loftið, og það gerir maður nánast í rauninni, því að maður stígur meira en metra upp á við hvem metra sem maður þokast fram á við. Óhjákvæmilega spyrja óttaslegnir ferða- menn, hvort allur umbúaður á slíkiun mannvirkjum sé nógu öruggur. Það er

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.