Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 10

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 10
mín er búin að ákveða það og faðir minn hefur samþykkt það; hann var að segja mér það áðan!“ Jack dró fram vasaklút, þurrkaði henni um augun og lét hana snýta sér. Síðan leiddi hann hana að föllnum trjábol. „Jæja, reyndu nú að vera róleg. 0g þeg- ar þú ert hætt að gráta, þá skulum við ræða saman um málið,“ sagði hann. Smám saman fékk Jack svo að heyra alla söguna inn á milli ekkasoga og snýt- inga. Hann reis ákveðinn á fætur. „Ég fer strax og tala við hann föður þinn,“ sagði hann. En Alice þrýsti sér að honum: „Nei, það máttu ekki, Jack. Þú mátt ekki fara og tala við hann. Hann yrði æfareiður, og Clara frænka . . . nei, ég get ekki afborið það.“ „Þú veröur að leyfa mér þetta, Alice. Faðir þinn getur ekki farið að gefa þig manni, sem þú kærir þig ekkert um. Við lifum þó á tuttugustu öld.“ „Já, en ekki pabbi. Þú þekkir ekki pabba. I hans augum er ekkert til nema bjöllur og skorkvikindi, hann kærir sig ekkert um fólk, — allavega ekki nema það fólk sem hefur vit á bjöllum. Og um þessar mundir er hann alveg uppnæmur. Hann hefur í allan vetur verið að skrifa ritgerð um ein- hverja andstyggilega bjöllu, og svo hefur hann nýlega frétt að einhver þýzkur próf- essor er lang kominn með að skrifa um nákvæmlega það sama. Og ef pabbi verð- ur ekki á undan til að skila sinni ritgerð, þá er allt starf hans unnið fyrir gýg. Hann verður æfareiður ef ég ónáða hann eða einhver annar.“ Alice var búin að missa alla von. Jack reyndi að finna einhverja leið, jafnframt því sem hann reyndi að hughreysta hana sem bezt hann gat. Allt í einu spratt hún á fætur. „En Jack þó! Klukkan er orðin fimm! Og ég á að vera komin í te til Winters ofursta. Clara frænka hlýtur að vera lögð af stað fyrir löngu. Hún verður ofsalega reið, ef ég kem ekki líka. Kannski get ég orðið á undan henni, ef ég hleyp áfram gegnum skóginn. Ó, hvað ég lít alveg hræðilega út!“ Þegar Jack sá hvar hún hvarf milli hárra burknanna sem uxu meðfram skóg- arstígnum, stóð hann kyrr um stund og hugsaði sig um. Síðan dró hann hattinn lengi-a fram á ennið, stakk höndunum í vasana, snerist á hæli og gekk hvatlega upp stíginn í áttina þaðan sem Alice hafði komið. Það mátti kosta það sem það vildi. Hann var á leiðinni upp að Chickenbury Hall til þess að láta Finchby prófessor heyra meiningu sína umbúðalausa. Frú Mason var að heiman, og honum þótti lík- legt, að hann gæti talað við prófessarinn eins og maður við mann.----------- Þegar hann gekk gegnum garðinn, tók hann hedur upp úr vösunum og dró úr gönguhraðanum. Hin djúpa kyrrð í garð- inum og virðuleiki hússins dró úr ákafa hans og minnti hann óþægilega á þá stað- reynd, að Alice var ríks manns dóttir, en sjálfur hafði hann rýrar tekjur. En þá minntist hann útgrátinna augna Alicar hvatti gönguna lítið eitt og þrýsti á dyra- bjölluna. Löng stund leið áður en komið var til dyra, og þegar það svo loksins gerðist, var það ráðskonan sjálf sem birtist. „Get ég fengið að tala við prófessor Finchby?“ spurði Jack eins rólega og hann gat og rétti fram nafnspjaldið sitt. „Prófessorinn er mjög vant við látinn og vill ekki láta ónáða sig,“ svaraði ráðs- konan drumbsleg. „Það er mjög áríðandi, að ég nái tali af prófessornum," mælti Jack og hækkaði svo róminn, að honum var sjálfum um og ó. Ráðskonan setti upp svip, en tók þó við nafnspjaldinu og hvarf inn um dyr til hægri í forsalnum. Jack beið, og hafði þá 46 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.