Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 15

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 15
f jallsins. Þaðan var hið fegursta útsýni yfir skrautbyggingar og víggirðingar hinnar helgu borgar og jafnframt mátti sjá það- an langt út yfir landið. Rétt í þessu gekk ung Gyðingamær út úr Korintuhliðinu, sem nefndist Koparhlið öðru nafni; fylgdi henni gömul þerna. Hún S'ekk út á veginn, sem lá til Kedron; lágu skrautlegir og skuggasælir aldingarðar á bökkum lækjarins. Símon, faðir hinnar ungu meyjar, átti þar líka víðar lendur. Hann var auðugur kaupmaður, sem bjó í stórhýsi einu í borg- inni og mátti það höll heita. En dýrmæt- ust af öllum auðæfum hans voru þó böm- in hans, þau Davíð og Rut. Rut var sextán ára og einkar fríð sýn- um. Hún var mjó og grönn vexti, svört á hár og augun stór og dökk. Af því nú var sumar, þá var hún í fínum, hvítum bún- aði, gullsaumuðum, að hætti tiginna kvenna. Vegna hitans hafði hún varpað slæðunni aftur af sér. Þar sem bugða kom á veginn, nam hún staðar og hrópaði af barnslegri gleði: —- Iras, yndislegt var það, að mamma skyldi leyfa okkur að ganga hingað út. En sú dýrðlega náttúra! En hið heilnæma loft! —En ætli faðir þinn yrði glaður, ef hann vissi, að við hefðum engan karlmann til fylgdar? svaraði Iras. — Hvers vegna heldur þú það, Iras? Heldur þú, að okkur geti hlekkst nokkuð ú. Hver skyldi geta gjört okkur nokkurn öskunda hérna — á alfaravegi eða — í aldingarðinum, sem liggur fast upp að veg- inum? —- Jæja, svaraði Iras efablandin, — ég ásaka mig fyrir það, að ég lét þig ráða og fór með þér alein. En hver getur færzt undan, þegar þú biður um eitthvað? sagði hún og leit til hinnar ungu meyjar og ást- ln og aðdáunin skein úr augum hennar. Rut hló þá hjartanlega. — Nei, kæra Iras, vertu ekki að ásaka þig um þetta, komdu með mér. Við erum bráðum komnar út að aldingarðinum - þar hittum við Davíð bróður minn — og þá getur hann fylgt okkur og verdað okkur. Að svo mæltu skundaði hún af stað, svo hraðan og léttan, að gömlu þernunni veitt- ist erfitt að fylgja henni. Iras var komin yfir sextugt. Hún var orðin gráhærð; en augun voru dökk og fjörleg; dökkbrúna andlitið á henni kom því upp um hana, að hún væri ættuð frá Egypalandi. Dökk varhúfa huldi höfuð hennar, að eyrnasneplunum undanteknum og á hvorum þeirra var stórt gat; það sýndi að hún var af lægsta flokki mann- félagsins komin, þrælunum. Iras var ambátt. En svipurinn og öll framkoma hennar bar þó vott um, að þessi lægingarstaða hennar hvíldi ekki þungt á henni. Og svo var heldur ekki. Bezta sönn- unin fyrir því var það, að hún hefði hæg- lega getað verið frjáls, ef hún hefði vilj- að. Símon hafði margsinnis boðið að gefa henni frelsi, en hún jafnoft hafnað því boði, en aðeins látið það í ljós, að sig lang- aði til að vera með fjölskyldunni, meðan hún lifði. Hún unni Salóme hugástum, móður Rut- ar, eins og hún væri barnið hennar. Hún hafði alið hana upp og er Salóme giftist, þá fluttist hún með henni á nýja heimilið hennar. Þá tók hún ekki minna ástfóstri við þau Davíð og Rut, því að hún hafði líka fóstrað þau og alið upp. Það voru því engin undur, þó að öll fjölskyldan hefði miklar mætur á gömlu ambáttinni. Þær Rut og Iras gengu áfram götuna og ræddu saman af mikilli kæti. Framundan þeim lágu tvö heilög leiði. Undir öðru leiðinu svaf Jósafat Júdakon- ungur svefninum langa. Undir hinu leið- inu hvíldi Absalon, sonur Davíðs. Meyjan unga varð þá alvarleg í bragði. — Við erum svo glaðsinna, sagði hún, — við gleðjumst af lífinu og ljósinu á vorri heimilisblaðið 51

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.