Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Síða 18

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Síða 18
— Vertu velkominn, göfgi Rómverji — vertu velkominn í aldingarð föður míns — Rut Símonardóttir býður þig velkominn, gakk þú inn! Iras leit til hennar og í svip hennar lýsti sér bæði viðvörun og ásökun; en samt virt- ist Rut eigi skilja það, heldur sagði enn einu sinni: — Gakktu inn, vertu velkominn í nafni föður míns. Hann á þér svo mikið að þakka. — Ég þakka, fagra Rut, en fyrst verð ég samt að láta þig vita, hvaða gestur það er, sem þú býður. Ég heiti Antonius Arrius. — Antonius Arrius, sagði Rut og virti hann fyrir sér með íhygli, — þú ert þá líklega sonur yfirmannsins við Antonia- kastala? — Já, svo er, sem þú segir. Þekkir þú föður minn? — Nei, ekki neitt verulega. Ég sá hann fyrir skemmstu ríða um götuna með Gessi- usi Florus, landstjóra. Ég dáðist að því, hve fákur hans var bráðfjörugur og her- klæðin hans krautleg. Og bróðir minn sagði mér þá, að það væri Arrius, höfuðsmað- urinn í Antonia-kastala. Að svo mæltu gengu þau inn í aldingarð- inn. Aldingarðurinn stóð í fyllsta blóma. Þar var svo mikil fylling blaða, blóma og ávaxta, sem sumrin ein á Suðurlöndum geta seitt fram. Allt í kringum hinar víðu grasflatir, sem náðu niður að Kedronslæk og fram með hinum breiðu göngum, sem liðuðust út um garðinn, mátti sjá aprikosu- tré, gullapaldra, og fíkjutré og pálma, sýkó- mórur og myrtusviði ljóma í sínum feg- ursta blóma. Hin djúpa forsæla undir þéttri kjarrgirðingu, þar sem stórir og þungir vínberjaklasar hengu niður, var ljúfur og laðandi hvíldarstaður. Þegar Rut var búin að sýna gesti sínum allan aldin- garðinn, þá nam hún staðar við setbekk einn, sem stóð hálfhulinn undir lárviðar- runni og limandi jasminum og mælti síðan: — Taktu þér sæti — hér er minn upp- áhaldsstaður. Hún settist sjálf gegnt hon- um og tókust þau síðan tali, og varð það því fjörugra, sem þau töluðu lengur, og á meðan var Iras að tína ávexti í garðinum og bjóða þeim. Antonius fór að segja henni þætti úr goðafræði Rómverja, og Rut fræddi hann í móti um hinn volduga Guð ísraels, Drottinn hersveitanna. — Hann er ekki aðeins hinn eini sanni Guð og Drottinn herskaranna, sagði hún í hrifningu, — hann er líka verndari lýðs síns, sá, sem stjórnar forlögum þeirra og mun frelsa þá á sínum tíma. Já, hversu djúpt sem vér erum sokknir, þá er arm- leggur hans nógu máttugur til að lyfta oss upp og-----------. Hér þagnaði hún allt í einu, því að nú kom henni í hug, að þegar Rómverji ætti í hlut, þá væri hún að komast lengra en góðu hófi gegndi. Hún var sem sé, fyrr en hún vissi vitund af, farin að tala um það, sem henni var hugljúfast, en það var — lausn Israels undan ánauðaroki Rómverja. Antonius leit brosandi til hennar; hann vissi hvað það var, sem hún lét ósagt; hann hafði gaman af hinni brennandi þjóðernis- tilfinningu hinnar ungu dóttur ísraels. Hann lagaði til að ræða þetta mál nánar, og þess vegna mælti hann: — Ljúktu máli þíu, fagra Rut — hvað ætlaðir þú að segja meira? — Þú ert Rómverji, sagði hún alvöru- gefin, — og af því lítur þú með drambi niður á oss, sem lifum í ánauð. Samt er ég þess fullviss, að vér verðum frjálsir að nýju. Sá Guð, sem stýrir forlögum þjóðar vorrar, hefur heitið oss frelsun frá valdi Rómverja. — Frelsun frá valdi Rómverja? tók hann upp drýgindalega. — Kæra Rut, hvaða rönd ætli fámenna, dáðlitla þjóðin þín geti reist gegn hinni voldugu Rómaborg. Láttu þér allar vorar hersingar í hug koma 54 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.