Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 19

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 19
— þær, sem hafa lagt undir sig því sem næst allan heiminn. — Ég hef athugað það, sagði hún borg- imnannlega. — En samt er það svo, að aðrar þjóðir hafa drottnað yfir ísrael á undan Rómverjum. En hvar eru þær nú? Hvar eru hin voldugu ríki, sem allur heim- urinn skalf fyrir á sínum tíma? Þær eru liðnar undir lok — Júda hefur lifað þær. Og um Rómaborg mun fara á sömu leið. — Ég ber lotningu fyrir eldmóði þín- um, dóttir ísraels, enda þótt ég geti ekki verið þér samhuga, svaraði Antóníus — og gjarnan vildi ég ræða það mál við þig frekar. Fyrirgefðu samt, þó að ég minni, þig á, að sólin er orðin lág á lofti og rökk- urtíminn er stuttur — það er kominn tími til að leggja af stað liéðan. — Er þegar orðið svo framorðið? mælti Rut undrandi, — og Davíð bróðir minn er ókominn enn. Hvað getur hafa orðið af honum? -— Ég býð þér vernda mína, fagra Rut, ef þú vilt þiggja hana, sagði Antoníus kur- teislega. — Ég tek því boði feginsamlega. En má ég það? Leggur þú ekki allt of mikið í sölurnar ? — Nei, vissulega ekki, leið mín liggur líka til Jerúsalem, og samfélagið við þig er mér kært. Síðan lögðu þau af stað og Iras á eftir. Innan skamms voru þau komin inn á hæðina gegnt Jerúsalem, og Rut nam stað- ar alveg frá sér numin. Fyrir framan þau lá borgin með turnum sínum og vígtindum & veggjum og glóðu þeir allir í gullnum 8'eislum hnígandi sólar. -— Líttu á! sagði hún, — hversu fögur er ekki vor heilaga borg. Hjartað fer að slá örara, þegar hún kemur mér svona fyr- lr sjónir. Er nokkur borg í heiminum víð- Urn jafnoki hennar? — Jerúsalem er líka farin að verða mér hser, svaraði Antonius, því að hér eyddi ég bernskudögum mínum. Og enda þótt ég verði að hverfa héðan, þá mun ég aldrei gleyma henni, hvert sem örlögin svo kunna að bera mig. — Þú farir héðan? hrópaði hún upp, eins og kveinstafur væri. — Hvers vegna? Hefur keisarinn kallað föður þinn héðan? — Nei, ekki er það — ég fer einn míns liðs. — Og hvert? — Til Rómaborgar. — Til Rómaborgar, en hví þá það? Og aftur var grátstafur í röddinni, en samt tók hún sig hvatlega á, — en hví er ég að spyrja — þú, sem ert Rómverji. — Já, ég er Rómverji, tók hann upp eftir henni með nokkrum sjálfsþótta og leit brosandi á hina ungu Síons-dóttur. — Rómverji — og bardagamaður, sagði hún hvatvíslega. Hann tók ekki eftir þessum skjótu skap- skiptum hennar, og sagði með áhuga: — Nei, ekki enn, en ég verð það. Hún þagði og horfði til jarðar niður. — Bardagamaður, mælti hann enn, — það er æðsta markmið hins unga Róm- verja. I Róm geng ég á skylmingaskólann hjá hinum fræga Palostra. Vinir mínir leiða mig á fund keisarans og þá liggur mér opin leið til hreystiverka — til frægð- ar og frama. — Það er leitt, að Rómverjar hafa aldrei hugann á öðru en hernaði, svaraði Rut. — Því sem næst allur heimurinn lýtur valdi ykkar Rómverja, og samt fáið þið aldrei nóg. Hugsið þið ekki út í það, að Guð muni hegna ykkur fyrir drambið, og hefna þeirr- ar ógæfu, sem þið hafið leitt yfir svo marg- ar þjóðir? — Kæra Rut, svaraði Antonius með krafti sannfærigar sinnar, — hinn veiki verður að lúta hinum sterka, það er lög- mál heimsins. Og samkvæmt þeim lögum er Rómaborg orðin drottning heimsins, en síðan sagði hann af eldmóði: — Júpíter HEIMILISBLAÐIÐ 55

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.