Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Qupperneq 21

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Qupperneq 21
Margir gáfu Antoniusi, Rómverjanum, illt auga, en Rut gaf engan gaum að því. Allt í einu sér hún hvar ungur maður kemur hlaupandi til þeirra og hún hróp- aði fagnandi til hans: — Davíð, bróðir minn, — loksins komstu — hvað varð af þér? Síðan sneri hún sér að Antoniusi og rnælti: — Ég ann honum, hann er svo góður, og ef þú kynntist honum, þá mundi hann líka verða þér kær. Davíð heilsaði Rómverjanum þurrlega og samkvæmt tízku og leit spyrjandi og með vanþóknun á systur sína. Hún lét sem hún skildi það ekki, heldur sagði með ákefð: — Það er Antonius Arrius, sonur höf- uðsmannsins í Antonia-kastala. Hann hef- ur gert mér mikið — mikið hagræði. Nú væri illa komið fyrir okkur Iras, ef hann hefði ekki hjálpað okkur. — Talaðu ekki um hagræði, tók Antoni- us til máls, Það tekur því ekki að minn- ast á það; þar að auki hefur þú, fagi-a Rut, launað mér það ríkulega, þar sem ég hef nú langtímum fengið að vera með þér. Davíð gaf Antoniusi illt auga um leið og hann sagði: — Svona ávarpar Rómverji systur mína —- dóttur Símonar? Hvað á ég að hugsa um það? Antonius svaraði engu, heldur leit ein- ungis brosandi á unga Gyðinginn. Þetta fjandsamlega viðmót gat ekki sett hann af stokkunum. Hann var orðinn því svo vanur, að sæta hatri og hleypidómum Gyð- inga í garð Rómverja og leit hróðugur niður á það. Rut roðnaði þar á móti af orðum bróð- ur síns. Hún leit á hann bænaraugum og niælti: — En, Davíð, hugsaðu út í, hvað þú ert að segja. Heyrðir þú þá ekki, að Antoni- us---------? — Það, sem ég sagði, var ekki í athuga- leysi sagt, tók Davíð fram í með miklum móði, — þar á móti virðist þú ekki hafa athugað, að þú ert af tiginni Gyðingaætt, og að lögmálið fyrirbýður þér að hafa um- gengni við heiðingja. Þegar tignarmenn og virðingamenn virða ekki lögmálið, hvers mun þá mega vænta af þeim, sem lægra eru settir? Hann þagði og leit spyrjadi á hana. Þetta tók Rut svo sárt að hún gat varla tára bundizt. Iras hafði til þessa staðið álengdar, sak- ir lotningar, en nú gekk hún fram og tók til máls og veik sér að Antoniusi: — Göfgi Rómverji, fyrirgefðu bræði unga mannsins. Hann er alinn við allan strangleik hins gyðinglega lögmáls og sér- hvert brot gegn því þykir honum ófyrir- gefanlegt. Hann er bráðgeðja og þarf lítið til að hann fjúki upp — hinn ugi angur- gapi, en samt er hann veglyndur maður og þakklátur. Enginn þekkir hann betur en ég, því að ég hef verið fóstra hans í bernsku og hennar líka; en hve hann var gott barn, já, og Rut líka. Ég hef séð þau vaxa upp mér til mikillar gleði, en hve ég er hróðug af þeim. Þetta sagði hún með nokkurri sjálfstilfinningu. Hún var alveg hugfangin af varaarræðu sinni og hélt henni áfram og tárin runnu niður brúna vangana. — Þú mátt trúa því, göfgi Antonius, að þegar honum er nú einu sinni orðið það ljóst, hve þú hefur bjargað okkur úr mikilli hættu, þá lítur hann öðrum aug- um á þig og verður þá ekki seinn á sér að votta þér þakklæti sitt. — Ég á engar þakkir skilið, Iras, svar- aði Antonius, og leit hlýlega til gömlu kon- unnar, — þessi greiði, sem ég gerði ykk- ur, hefur þar að auki ekki orðið til ann- ars en að baka ykkur óþægindi. Annars verð ég að játa, að þú ert góður verjandi, gamla kona, og það get ég sagt þér til hug- heimilisblaðið 57

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.