Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 29

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 29
— Ég- verð nú samt að hugsa til míns týnda bróður. Hann var svo hygginn og hraustur og hugaður; en aldrei fær hann hlutdeild í frægð ísraels: — Þegi þú um hann, sagði Símon byrst- ur, hví dirfist þú að nefna hann, sem er bölvaður! Hann er rækur og útskúfaður frá fjölskyldu sinni og þjóð — hann ætti að vera oss sem dáinn maður. •— Já, hann er týndur og dáinn okkur — ég veit það, svaraði Salóme með hryggð, en samt er hann ekki dáinn í sálu minni. Ég unni honum hugástum — Sál, mínum vitra bróður. Já, við unnum honum öll, og vorum hróðug af honum------------. — Og samt bakaði hann ykkur ekki ann- að en sorg og smán, tók Símon fram í fyrir henni með ákefð, hví dirfist þú að tala um hann, — og kalla hann, meira að segja, bróður þinn? Minning hans sé bölv- uð og útslokknuð að eilífu úr endurminn- ingunni. Salóme gerði ekki annað en andvarpa. — Já, já, tók Símon upp aftur, minning hans sé bölvuð. Hversu gat hann, tiginn Gyðingur, gerst lærisveinn svikarans frá Nazaret — sál hans sé glötuð, já, týnd og fyrirdæmd um eilífð alla. Salóme þagði við því, en tárin runnu niður kinnar henni. Þau Davíð og Rut hlýddu á þessi orða- skipti foreldra sinna. Aldrei hafði þeim verið sagt, að móðir þeirra ætti bróður á lífi; nafnið Sál hafði aldrei verið nefnt í eyru þeirra.-----Hvað skyldi liggja á bak við það? Og faðir þeirra brann af i’eiði við móður þeirra, aldrei þessu van- ur og móðir þeirra flaut í tárum og allt var það vegna þessa Sáls. En þeim gafst ekki langur tími til að hugsa um þetta, því faðir þeirra sagði í hvössum skipunarrómi: -— Davíð og Rut, farið þið að hátta! Þau horfðu augnablik hvort á annað, fóru síðan og buðu foreldrum sínum góða nótt. En langt leið um, áður en þau sofn- uðu. Davíð hugsaði fyrst um Sál og hvað hann hefði gert. En svo kom bjartari og prúðari mynd honum fyrir hugskotssjónir — myndin af Messíasi — hinni konung- legu hetju Israels, og myndir af orustum og sigurvinningum, af veldi og dýrð ísra- els. Fyrir þessum myndum varð myndin af Sál að rýma. Og Rut lá líka og hugsaði. Hin miklu undursamlegu fyrirheit hljómuðu í sálu hennar. Ó, hve það var dýrðlegt, að hún skyldi fá að njóta þeirrar sæmdar að vera uppi á þeim dýrðartíma, er þessi fyrirheit áttu að rætast, En svo hvarflaði hugur- inn til móður hennar, sem bauð henni grát- andi góða nótt og síðan frá móðurinni til Sáls, sem olli tárum hennar. Loks kom fram myndin af Antoniusi og við þá mynd svifu hugsanirnar inn í ævintýraheim draumanna. Morguninn eftir sat Rut út í innri garð- inum hjá gosbrunninum, önnum kafin við sauma. Þegar hún var búin að sitja þar um stund, kom Davíð og settist við hlið henni. — Elsku systir! Þú ert svo iðin — hvað ertu að sauma? spurði hann vingjarnlega, en þó fannst eins og einhver styttingur í málrómi hans. Hún leit á hann brosandi. — Geturðu ekki séð það — það sem er kápan þín, sem ég hef með höndum. — En hve þú ert góð, elsku systir, hvað á ég að gefa þér í staðinn? — Veittu mér vernd þína, svo að ekkert geti orðið mér að meini. — Þú mátt vera viss um hana, Rut; en samt sem áður vildi ég gefa þér eitthvað, sem gæti glatt þig. Hvað mundir þú segja, ef ég gæti flutt þér kveðju frá manni — sem —. Hann hikaði við. Rut leit spyrjandi á hann. — Já, gettu nú, sagði hann, hugsaðu þér HEIMILISBLAÐIÐ 65

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.