Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 30

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Page 30
útlending — tignarmann — þú sást hann í gær. Rut roðnaði. Davíð hló háðslega. — Jæja, nú veiztu víst, hvern ég á við. En það er sannleikur. Ég hef kveðju að færa þér frá Antoníusi Arrius, syni höf- uðsmannsins. — Hvernig bar fundum ykkar saman? spurði Rut hóglega, og reyndi að leyna geðshræringu sinni. — Þú veizt, að ég gekk árla út til að hitta Eleazar. Við gengum út um Joppe- hliðið og niður eftir þjóðveginum. Þá var enn allkyrrt á veginum. Við hittum ein- ungis fáeina ökumenn, sem voru að aka vörum á torgið með ösnum sínum. Allt í einu hljóp fjör í allt á bak við okkur og við litum við. Hópur rómverskra riddara kom þeysandi á eftir okkur. Á undan þeim reið höfuðsmaður og við hlið honum mað- ur í glóandi herklæðum. Þá kreppti Ele- azar ósjálfrátt hnefana og tautaði: — Bíðið þið, hundar, innan skamms er úti um dýrð ykkar. —Þú skilur víst, að þessi ungi riddari var Antoníus. Þegar við komum aftur að borgarhliðinu, þá var oss sagt, að höfuðs- maðurinn hefði verið á leið til Gestiusar Gallusar með sveit sína, landstjóra keis- arans í Cæsareu. Antoníus átti að fylgja hersveitinni þangað og þaðan átti hann svo að sigla til Rómaborgar með fyrsta skipi. — Hann er þá eftir því á leið til Róma- borgar í dag, sagði Rut hugsandi, hann drap á það við mig í gær. .En síðan sagði hún dræmt: — En kveðjan — kvaddi hann þig og sendi hann mér-------? — Já, víst er það. — Og þú? — Ég? Heldur þú að ég taki kveðju Rómverja? Þá roðnaði Rut aftur. Henni brugðust vonir. 0g hvemig hafði hún annars átt að geta hugsað sér annað? Hugarfar bróður síns þekkti hún betur en nokkur annar. Og gat hún ámælt honum fyrir framferði hans? Nei, hún var sannfærð um að hann breytti réttilega. Hann var ekki aðeins eldri og vitrari, heldur líka betri Gyðing- ur en hún. Myndin af hinum státna Róm- verja lifði að vísu í sálu hennar. En hann var nú samt heiðingi og óvinur lýðs henn- ar. Hún sá til fullnustu, að Davíð hafði breytt réttilega. Þess vegna sagði hún auð- mjúklega um leið og hún gekk til hans og klappaði ástúðlega á vangann á honum: — Davíð bróðir minn, þú hefur rétt fyrir þér og mér hefur stórlega yfirsést. En hafðu þolinmæði við unga systur þína og vísaðu henni á rétta veginn. Hún vill svo gjarna fara að vilja þínum. Hjarta Davíðs bráðnaði við ást og auð- mýkt systur hans og svo gjörbreyttist hann, að hann varð allur annar. Hann svar- aði henni með óvenjulegri ástúð í rómnum: — Elsku systir! Ég er búinn að gleyma því öllu og er alls ekki reiður við þig, og vil ekki ámæla þér. Það eitt vil ég segja: Mundu eftir því, að þú grt Gyðingastúl&^ Ég vil alltaf vera vtðbúinn að ráða þér heilt og hjálpa þér! En vertu þá líka hjálp- vættur minn — gerðu mig eins góðan og þú ert, — ég veit það vel, að ég er bráð- geðja og læt oft stjórnast af bráðlyndi mínu og verð þá harður og óástúðlegur. Framh. 5® 66 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.