Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 32

Heimilisblaðið - 01.03.1980, Side 32
Feita María hefur lagt það í yana sinn að sofa fyrir utan hús Kalla og Palla. Og það versta við það er að hún hrýtur svo hroðalega, að vinir okkar geta ekki sofið. Þegar þetta hefur gengið svona til lengi tekur Kalli stóra málverkið af Palla. Hann klippir myndina út og leggur hana síðan undir friðarspillinn. „Sjáðu, þú hefur flatt aumingja Palla út eins og pönnuköku, klaufinn þinn!“ segir Kalli næsta morgun við flóðhestinn. Og hann þýtur á brott með það sama. „Þarna lékstu heldur betur á Feitu Maríu, nú fáum við kannski frið á næturnar." „Hefurðu séð, hvað rignir mikið, Kalli? Við getum ekki farið út í þetta veður!“ segir Palli, þegar hann opnar dyrnar út. „Þú veizt vel, að það er laugardagur núna, Palli, svo við neyðumst til þess,“ anzar Kalli. „Náðu í regnhlífarnar og komum okkur af stað!“ Palli verður að hlýða eins og venjulega, og með regnhlífarn- ar dregnar langt niður fyrir höfuð hlaupa þeir allt hvað þeir geta, en verða þrátt fyrir það holdvotir. Nú eru þeir loks komnir á áfangastað. Það er almenn- ingsbaðhúsið, þar sem þeir fá sér venjulegt laugar- dagsbað. Og það má ekki vanrækja.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.