Heimilisblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 35
Kalli og Palli eru aö búa sig út í haustferð og láta
niður í ferðatösku. Palli reynir að loka töskunni,
Þegar búið er að fylla hana. En það er allt of mikið
1 henni. „Komdu og setztu á hana," segir hann.
®n Kalli er ekki nógu þungur. En hami sér Júmbó
fyrir utan gluggann og biður hann að koma inn og
setjast á töskuna. Júmbó gerir það. En hann er aftur
á móti of þungur, svo taskan verður alveg flöt. „Þá er
búið að bjarga þessu við,“ segir Júmbó, „og nú getið
þið sent hana í pósti eins og póstkort!"
Kalli og Palli þurfa að mála girðinguna sina. Palli
s*kir stiga og strýkur málninguna á með rúllu, en
Kalli heldur á málningarkrúsinni. Þeir verða að flytja
stigann til eftir því sem þeir mála. Á meðan þeir eru
mála kemur Péur kanína og dregur vagninn sinn
á eftir sér. Kalli fær ágæta hugmynd og fær Pétur
kanínu til að hjálpa þeim við að mála. Þeir setja stig-
ann í vagninn og Palli klifrar upp hann og segir Pétri
að draga vagninn og nú gengur vinnan vel.