Heimir - 01.11.1908, Page 18
HEIMIR
114
heíir heyrst nú á síöustu tímum í þjóöfél. voru.aö Unítarar væru
trúlausir, af því þeir væri trúarjátningar lausir. Því skal ekki
neitað, aö vér bindum ekki samtíö vora nokkurs inanns eöa
eöa manna skilningi, frá liönum eöa yfirstandandi tíma, á trúar-
lærdóminum. Þaö má vel vera, að þaö sé oss tjón og tefji fyrir
aö myndast geti voldugur flokkur og mannmargur að svostöddu.
En þó er afstaðan rétt. Þaö gefur einstaklings frelsinu rúm,
sálargáfum mannsins tækifæri að vaxa og fullkomnast, eftir því
sem hver hefir atgjörfi til. Þaö eflir þá einingu í hinum æöra
skilningi, þar sem einn bætir annan upp.
Eða hvaö er fengiö meö „conformity" eins og því sem
kyrkjuþingin fyrirskipuðu með bannfæringum og brottrekstri
allra, er nokkurn mótþróa sýndu, eöa hvaö þýöir sú tileinkun,
aö kalla sig almenna, katólska, eins og Rómverska kyrkjan,
þegar oröiö í reyndinni þýöir, aö helmingi manna er burt-
kastað út úr kyrkjunni.
Menn á vorum tima eru farnir að hugsa út í hvaö slík nöfn
þýða. Og eftir því sem lengra líöur sjá menn þaö betur. Vér
eruin „nonconformistar" og blygðumst vor ekki fyrir þaö nafn,
heldur leggjum það til athugunar og undir dómsályktan allra
skynbærra manna.
Vér trúum á framför mannkynsins og, aö hiö góöa í mann-
legu eðli, er í allra meövitund er ofiö, sé hinn eini eilífsanni
sameiningar þáttur í bræöralagi mannkynsins, nú og um kom-
andi tíma.
GUÐSÞJÓNUSTUGJÖRÐIN.
—o—
Friggi ræðu flytja vann
— flóöu á mörgum trýnin.—
Hún var öll um Andskotann,
sem ekki fór í svínin. Svá.