Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 4

Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 4
124 HEIMIR sem fluttir voru til Babylon, og þeir sern heima sitja viö fallin garö frægðaraldar, gamalla daga. Og hinir fornu Hafnar stúdentar, er ýkjugirni íslenzkra sagna heflr gætt yflrnáttúrlegu, afli, minni, námshæfilegleikum, æfintýrastauti, er glíma var við tröll, reka var út sjómenn úr drykkjukrám, reikna ervið dæmi, eða leggja út af óvanalegum textum, eiga enn sanna eftirkom- endur er sverja sig til íslenzkrar ættar meðal íslenzkra nemenda fyrir vestan haf. Við tröll hefir verið að glíma, ekki sízt þegar efnahagur er af skornum skamti, að kljúfa kostnað þann sem fylgir háskóla- göngu, þar sem keppa er við úrvalaliö æskulýðs ýmissa þjóða er ásamt oss eru búsettar hér í landinu. Cecil Rhodes’ styrkurinn er einungis veittur fyrir framúr- skarandi próf alla skólaleiðina til enda og afburði í leikum og íþróttum er samfara eru héf í landi háskólanámi. Hefir Joseph Thorson uppfyllt öll þau skilyrði og því hlotið heiðurinn. Joseph Þórarinn Thorson er fæddur hér í Winnipeg og eru foreldrar hans þau Stefán Thorson, valin-kunnur gáfumaður og ræðumaður ágætur, hér í borg, og kona hans Sigríöur Þórar- insdóttir. Eru þau hjón bæði ættuð úr Biskupstungum í Arnes- sýslu. Foreldrar Stefáns voru þau Þórður Jónsson og Helga Jónsdóttir,hjón á Bryggju í Biskupstungum, en foreldrar Sigríðar þau Þórarinn Þórarinsson og Guðríður Jónsdóttir hjón í Asakoti í Biskupstungum. Þau Stefán og Sigríður fluttust til Reykjavíkur árið 1881 og stundaði Stefán þar steinsmíði. Þar dvöldu þau' uns þau fluttust hingað vestur sumarið 1887, og er Joseph sonur þeirra.einsog áður segir, fæddur hér þann 1 5 Marz mánaðar 1889 er hann því aðeins tvítugur að aldri og því sá ýngsti er hlotið hefir Rhodes’ verðlauninn enn sem komið er, hér við háskólann. Ennfremur má geta þess að frá því háskólinn var stofnaður hér í þessu fylki nú fyrir 32 árum síðan, eða síðan 1877, hefir engin útskrifast með jafn háum vitnisburði og hann. Til gamans setjum vér hér vitnisburð hans frá því hann lauk námi á barna- skólanum árið 1903, við Carlton skóla þessa bæjar og fram til þessa.

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.