Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 21
HEIMIR
141
únítariskum skoöunurn samþykkir, á árinu, sem nú er byrjað.
Samvinnan og einingin eru alstaöar nauðsynlegar, en hvergi þó
jafn nauðsynlegar og þar sem starfsmennirnir eru fáir og mál-
efnið stórt.— Góður vilji er sigursæll, honum er ekkert um
megn.
Þann 12. Sept. í haust er leið myndaðist nýr söfnuður við
Otto P. O. hjá Grunnavatni. Var safnaðartnyndun sú að
miklu leiti að þakka starfi hra. Alberts Kristjánssonar, guðfræðis-
nemanda viö Meadville prestaskóla, er var þar vestra síðast
liðið sumar og þjónaði Mary Hill söfnuði í Álptavatns byggð um
sama tíma.
Allareiðu voru margir frjálslyndir menn við Grunnavatn, og
þar á meðal hra. Pétur Bjarnason er verið hefir útbreiöslu stjóri
hins Únítaríska kyrkjufélags nú um nokkurn tíma. Og komið
hafði til tals að mynda þar söfnuð nú fyrir nokkru en varð þó
ekki af þá, vegna þess að mönnurn fanst tæplega 'tími tilkominn
fyr en almenningi bygðarinnar gæfist kostur á að kynna sér
skoðanir Únítara. Messum var því aðeins haldið uppi undan-
farin ár og að lokum hefir það borið þenna árangur.
Á fundinum í haust voru þessir kosnir í safnaöarnefnd :
Pétur Bjarnason, forseti; Mrs. Oddfríður Johnson, vara forseti;
Steinþórr Vigfússon, Skrifari; Pétur Pétursson, vara skrifari;
Einar Johnson, féhirðir; Ingimundur Sigurðsson og Mrs. Sigríöur
Hördal, meðráðamenn.
Ársfund hélt söfnuðurinn aftur nú í síðastliðnum mánuði
(Janúar) og voru þá flestir hinir sömu endurkosnir. í stað
skrifara var Miss Rannveig Halldórsson kosin og í stað meðráð-
enda hra. Jónas Halldórsson og Jón Vestdal.
Söfnuður þessi nefnir sig “Únítariski Söfnuður Islendinga
við Grunnavatn.” Er nú byggðin hér vestur af Winnipeg, við
Manitoba vatn vel skipuð frjálshugsandi mönnum og líkur til að
sú stefna eigi þar fagra framtíð. Hafa söfnuðurnir við Mani-
toba vatn og Grunnavatn kallað til sín prest með komandi