Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 13

Heimir - 01.02.1910, Blaðsíða 13
HEIMIR 133 Út um glugga híbýla vorra, sjáum vér menn og skepnur á ferö, snjó þakta jörö, hús í hillingum nær eöa fjær, til skóga, upp í heiöbláann himinn, á stöku staö til hafs. Úti, þótt vér staönæmumst á göngu vorri, sjáum vér hiö sama. Og ef vér horfum til himins sjáum vér blágeiminn og hér og hvar aö um hann sigla slæöur, sumar þykkar og háar, aörar þunnar og gresjulegar og á milli stafa út geislar sólar. Slæöur þessar er gufa jarðar. Vér sjáum aðeins út í gejminn og aö í honum hangir í ó- teljandi myndum gufa jaröarinnar í afar fjarlægð fyrir ofan oss, ský er bera hraðan fyrir vindi. Þetta hefir mætt augum mannkynsins um óteljandi aldir, öld af öld, kynslóð eftir kynslóð. Hugsanir hefir þaö vakiö stundum, án þess þó að meira fengi nokkur séð eða lengra litiö. Meöal alls fjöldans vakiö þó alls engar hugsanir, en í stöku hjarta, ef til vill, vakið óljósa þrá eöa löngun ; löngun aö svífa út um heimin.-—Far þrá. Andinn finnur ávalt, hjá þeim, þar sem hann er annars nokkur, einsog eitthvaö kreppi aö, einhver þreingsli, takmörkun og út fyrir þrengslin, takmörkin, þróttleysið fálmar hann og seilist. Og hver mynd sem meö sér ber ótakmarkaðann mátt, svifrúm, vekur hann af dvala einsog dagsljósiö sofandi mann. Til himinfaranna hafa skáldin sent kveöju, ákallaö þau að vera sér vegvísarar, flytja sig, kénna sér flugið og máttinn aö lifta sér yfir þaö hversdagslega. Börnin jafnvel aö leikum sínum hrópa yfirkomin: “Sjá, þarna er guö.” Gufa jarðar hrópar til gufu jaröar! —Furöulegt!— Augaö hefir séð farfleygið. Meira hefir það ekki séð. En tilfinningin hefir vaknaö! Og hvernig getur á því staöiö? Tilfinning mannlegrar sálar fundiö skyldleika með hinum dauöu hreyfingumjnáttúrunn- ar, fundiö þar líkingu sinna eigin langana, dæmisögu síns eigin sálarlífs ? Er það af því aö skyldleikinn er til, milli mannsinsog ytri tilverunnar, milli mannlífsins og alheims lífsins ? Er þaö af því aö alt líf er eitt í þessum óteljandi myndum, og ein mynd-

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.