Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1920, Blaðsíða 34
28
Olaf Johan-Olsen:
IÐUNN
læti. Honum var það eigi eins mikið kappsmál og
föður hans að ná sem mestum völdum sjálfur. Aðal-
markmið hans var að skapa hamingju og ánægju,
velmegun og menningu meðal þegna ainna. Hann
reyndi að koma á friðarsambandi með þjóðum
Asíu. Stríðum skyldi afstýrt, samkomulag koma í
þeirra stað. í þeim tilgangi sendi hann »vináttu-
sendiherra« í allar átlir til allra hirða til að greiða
fyrir framkvæmd hugsjóna sinna, að koma á verzl-
unarsamböndum og friðsamlegum viðskiftum milli
landanna. Friðarsendiherrar hans fóru víða, til Ind-
lands, Kína, Tartaríu, og komu meira að segja til
nokkurra hirða í Evrópu. Auk aðalmarkmiðsins, að
koma á samböndum, átti með þessu einnig að safna
svo mörgum lærðum mönnum, listamönnum og
skáldum til tyrknesku hirðarinnar sem unt væri.
»Orð þau, er hann mælti við son sinn, er hann
fékk honum í hendur umboðsstjórn yfir Turkestan,
eru þess verð, að þau séu í minnum höfð:
»Vittu það, sonur minn, hinn almáttugi hefir eigi
gefið okkur valdið vegna persónulegra verðleika
okkar. Okkur ber því að sýna honum þakklæti
okkar með brjóstgæðum við alla ólánsmenn. Pví að
guð sagði við Davið: ,Eg hefi sett þig staðgöngu-
mann minn á jörðunni, til þess að þú látir alla
njóta réttlætis.' Vaktu því yfir, að dómararnir fylgi
lögunum og haldi uppi heiðri þeirra. Um fram alt
skaltu leggja þér á hjarta að hjálpa sveitafólkinu,
sem yrkir jörðina; verndaðu það fyrir kúgurum þess,
fyrir höfðingjunum, fyrir þeim, sem reyna að leggja
á það öll gjöld og allar byrðar ríkisins.«
Hvað er menning? Hvað er siðleysi? Bendið mér
á þjóðhöfðingja í Norðurálfu á þeim tíma með eins
háleita lífsskoðun og þessi »vantrúaði« og »ósiðaði«
Tyrki. Og sonur hans, Ulug Begh, sýndi það, að
hann var eigi óverður trausts föður síns. Hann var