Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1920, Blaðsíða 74
68
Jón J. Aðils:
IÐUNN
teptust og kaupmenn fóru unnvörpum á höfuðið.
Kom þar að lokum, að aftur var horfið frá þessari
verzlunartilhögun og tekin upp félagsútgerð að nýju
(1733).
Félag það, sem nú tók við verzlun hér á landi og
rak hana i 10 árin næstu, gat sér beztan orðstír allra
þeirra félaga, sem voru við íslenzku verzlunina riðin,
og var mjög lítið um aðfinslur af hálfu landsmanna
á þessum árunum, en hagnaðurinn þó mikill hjá
félaginu, enda var því stjórnað af hinni mestu fyrir-
hyggju. Þetta varð til þess, að Hörmangarar í Kaup-
mannahöfn fóru að seilast eftir verzluninni, þegar
leigufresturinn var út runninn, og buðu hærri leigu
en hinir, svo að þeir urðu hlutskarpari. En fyrir
landsmenn voru þetta ill umskifti, því Hörmangara-
félagið virðist eingöngu hafa lagt stund á að maka
krókinn án þess að hirða nokkuð um skuldbindingar
sínar eða að fullnægja þörfum landsmanna, enda leið
eigi á löngu áður félagið yrði svo illa þokkað hér á
landi, að slíks voru engin dæmi, og sá stjórnin sér
að lokum eigi annað fært en að hefja rannsókn úl
af verzlun félagsins og þröngva því til að fara frá,
áður en leigufresturinn var út runninn. Vék því svo
undarlega við, að félagið hafði upp á síðkastið stór-
skaðast á verzluninni þrátt fyrir ágengnina. Var nú
loks farið að hreyfa því af hálfu íslendinga, hvort
eigi mundi tiltækilegt að veita þeim sjálfum einhverja
hlutdeild í verzluninni. Hafði stjórnin að sínu leyti
ekkert á móti því, ef þeir gæti komið sér saman við
Dani um það mál og konungur þyrfti eigi að láta
neitt fé af hendi rakna í því skyni. En Hörmangarar
gerðu sitt ítrasta til að spilla fyrir allri viðleitni í
þá átt, og fór svo að lokum, að enginn fékst til að
reka verzlunina. Varð þá eigi hjá því komist, að
konungur sjálfur tæki hana að sér til bráðabirgða,
og var nú hér eftir meira en áður litið eftir hags-