Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 34

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1926, Side 34
28 Sigurður Nordal: ÍÐUNN ingum Krists og hugsjónum kristninnar (bls. 262). Hann ber sífelt fyrir sig Krist og postulann Pál og þykist vera þar í góðum fjelagsskap. Hann gerir auðsjáanlega ráð fyrir, að Kristur myndi vera á sama máli, því að annars verður lítið úr félagsskapnum. Og E. H. Kv. tekur það skýrt fram, að »]esús Kristur heimti sérstaklega fyrir- gefningar-hugarfarið.« Nú vill svo einkennilega til, að þessi grein er rituð af talsverðri gremju. Mér liggur við að halda, að hún hefði varpað meira ljósi á viðfangsefni þau, sem um er rætt, ef minna hefði gætt í henni særðrar eigingirni höfundar- ins og persónulegs kala til mín. Eg skal taka tvö dæmi. Eg hafði ritað grein mína í Skírni af kurteisi og sann- girni, eins og flestir hlutlausir menn munu viðurkenna. E. H. Kv. viðurkennir það líka, en með þeim orðum, að eg »reyni að breiða svikablæju falsaðrar sanngirni og óhlutdrægni yfir það,« sem eg haldi að lesöndunum (bls. 253). Gætni í fullyrðingum og jafnvel efagirni hafa löng- um verið talin einkenni þessa rithöfundar. En þarna full- yrðir hann meira en hann veit og við hefur auk þess óþarflega leiðinlegt orðbragð. Og hann varar sig ekkert á því, hvað svona ummæli stinga í stúf við áminning þá »að varast hörðu dómana,« sem er tvítekin síðar í grein- inni (bls. 256, 261). — Þó er hitt dæmið enn greinilegra og auk þess skemtilegra. Eg hafði í grein minni sagt um eina sögu E. H. Kv., sem er framúrskarandi losara- leg, »að væri hún gamalt æfintýri, myndi enginn þjóð- sagnafræðingur hika við að segja, að hún væri sett sam- an af þrem broíum eftir þrjá höfunda.« E. H. Kv. tekur þessu tveim höndum — »einkum ef þjóðsagnafræðingur- inn væri þá jafnframt norrænufræðingur.« Hann fer síðan mörgum orðum um, hve margt í þeim vísindum sé á litlum rökum reist. Lesandinn fer svo sem nærri um,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.