Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 15

Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 15
Kirkjuritið. Minningarhátíð siðbót. í Danmörku. 40f. endurreisa kirkjuna, — þó ekki sem sóknarkirkju (þvi að þess þótti ekki þörf á þeim stað í borginni), heldur sem samkomuhús — hæði andlegt og' veraldlegt. (Hin síðari árin hafa t. a. m. verið fluttar þarna bæði íslenzk- ar og færeyskar guðsþjónustur, en jafnframt hafa „borgaralegar fermingar“ verið látnar fara þar fram). Að þetta kirkjuliús var nú valið lil þess að hyrja þar þessi minningarhátíðahöld, stóð í sambandi við það, að hin gamla Nikulásarkirkja, sem þar stóð áður, var fyrsta Kliafnar-kirkjan, þar sem flutt var guðsþjónusta samkvæmt hinum nýja, evangeliska, sið af einum af forvígismönnum siðbótarinnar, Hans Tavsen, hróður af Jóhanníta-lifnaði (löngu síðar biskupi í Rípum). Tavsen hafði áður prédikað „evangelíum“ í Véhjörg- um við geysimikla aðsókn, en 1529 verið kvaddur af Friðriki konungi I. til að vera sóknarprestur við þessa Nikulásarkirkju í Kliöfn, sem við það varð „vagga sið- bótarinnar“ i sjálfum höfuðstaðnum. Bæjarstjórn Kliafnar gekst fyrir því, að þessi minn- ingarhátið var haldin á þessum stað, en einn af borgar- stjórunum, dr. E. Ivaper, átti forsæli í forslöðunefnd þessara minningarhátíðahálda. Fyrir troðfullu liúsi áheyrenda, sem sérstaklega hafði verið boðið og allir voru skrýddir hátíðabúningi, flutti þetta kvöld liinn ungi skriftafaðir konungs vors og prófastur við Holmenskirke, dr. theol. Michael Neiien- dam, alllangt erindi um upphaf siðbótarinnar þar í landi. Var það þrungið af sögulegum lærdómi og flutt af mikilli mælsku, enda er dr. Neiiendam hvorttveggja í senn sprenglærður kirkjusagnfræðingur ogmeð afbrigð- um vel máli farinn. Var þá líka gerður liinn hezti róm- ur að þessu erindi hans. Á undan erindinu voru fyrst sungin af fimm manna söngflokk tvö erindi fornkirkju- lega sálmsins „Gloria in excelsis“ í elzlu dönsku þýð- ingu hans, en síðan af öllum kirkjugestunum „Dagvís- an“ gamla í þýðingu Grundtvigs: „Den signede Dag mcd

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.