Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 18

Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 18
408 Jón Helgason: Kirkjuritið. um mun i'orseti þjóðþingsins Hans Rasmussen hafa tal- að. Eftir að setið hafði verið að borðum i tvær stundir, var staðið upp frá borðum og skiftu menn sér eflir eig- in vild niður í salakynnum rikisþingsins og í „Vandre- hallen“, þar sem hressingar voru til boða hverjum, er þiggja vildi. Zalile landsþingsforseti hitti þann, er þetta ritar, að máli að borðhaldi loknu og mæltist hann til þess, að ég kæmi inn á heimili hans (en forsetar ríkis- þingsins liafa ókeypis bústað á Kristjánsborgarhöll), til þess að sjá „hvernig færi um þá heiðursgjöf, sem hann hefði kærasta þegið á æfi sinni“, en gjöfin, sem liann átti við, var liið fagra málverk Jón Stefánssonar frá Þingvöllum, sem Zahle hafði hlotið að gjöf frá íslandi á 15 ára afmæli sjálfstæðisins, sem Zahle átli ekki hvað minstan þátt í, að við fengum 1918. Sómdi þessi heið- ursgjöf frá Islandi sér einkar vel á veggnum í viðliafn- arstofu þingforsetans, og var sýnileg ánægja þeirra hjóna yfir liinni veglegu minningargjöf. Þessi hátíð ríkisþingsins stóð langt fram á nótt, en sá, er þetta ritar, hvarf heim til sín, er leið af miðnætti. Fimtudaginn 29. október kl. 3 hafði félag eitt „Folke- kirkeligt filantropisk Forbund“, sem þessa daga hélt „landsfund“ í Ivhöfn, hoðið oss gestum til þátttöku í fundi þess i Ansgars-salnum í húsi K. F. U. M., en það fórst fyrir, að ég gæti fært mér í nyt það boð; en fjórir hinna úllendu biskupa fluttu þar sitt erindið hver um guðsþakkarslarfsemina með kirkjum þeim, sem þeir voru fulltrúar fyrir. Aftur tók ég þátt í kveldveizlu mik- illi, sem Hjerl Hansen forstjóri (einlægur kirkjuvinur og áhugamaður um öll mál, er að kirkjuhaldi lúta) hafði efnt til og boðið okkur aðkomugeslum til ásamt ýms- um „leiðandi“ kirkjumönnum horgarinnar. Var veizla þessi liin skemlilegasta, og var henni lokið stundu fyrir miðnætti, enda skyldi aðal-minningarhátíðin hefjast næsta dag og standa að mestu frá morgni til kvelds. Þessi aðalhátíðisdagur — föstudagurinn 30. okt. rann

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.