Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 35

Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 35
Kirkjuritið. Jól í Svíþjóð. 425 sungu jólasöngva og léku jólaleiki liinna ýmsu sér- stöku héraða. Þegar út kom aftur, fanst að minsta kosti mér, út- lendingnum, sem ég væri aS koma úr löngu ferðalagi. Mér fanst ég hafa verið jólagestur úti i bygðum SvíþjóS- ar, við vötn og víða skóga. Eitt var að minsta kcsti að læra af þessari sýningu, hversu ræktarsamir Svíar eru við bygðarlög sín, siði sína og venjur. Við hjónin vorum hoðin út á aðfangadagskvöld. Þeg- ar við vorum á leiðinni í hoðið, var kyrðin að færast yf- ir; fleslir, sem við mættum, voru prúðbúnir, og voru á leiðinni þangað, sem þeir ætluðu að njóta jólanna. Ann- ar svipur var kominn yfir, og stjörnurnar, marrandi vegurinn og hvítglitrandi trén, alt virtist hafa íklæðst þeim svip, sem við nær ósjálfrátt tengjum einmitt við jólin. — Leið okkar lá með fram stóru sjúkrahúsi, þar skinu dauf ljós í gegnum gluggatjöldin; hvernig þeim var innan hrjósts, sem þar lágu á beðjum sínum, skal ekki sagt, en ég ímynda mér, að flestir þar hafi einnig eignast sín jól — og e. t. v. ekkert síður lielg jól en ýmsir hinna, sem frjálsir gátu farið allra sinna ferða. — Ef slökt var og gluggatjöldin dregin frá, þá horfðu þúsund stjörnur inn í stofurnar; ef ekki var slökt, voru kerta- ljós tendruð og helgi og friður skapaðist í hlýjum bjarm- anum. Ökutækin fóru rólegar og liljóðlegar, og þar sem fleiri voru á ferli saman, töluðu menn lágt og stilli- lega — liávaði heyrðist hvergi. Þegar við vorum komin á ákvörðunarstaðinn, stakk húsbóndinn upp á því, að við skyldum ganga til kirkju, og þegar við vorum komin það nærri, að við vorum farin að berast með straumnum, kváðu alt í einu við kirkjuklukkurnar úr öllum hlutum borgarinnar. — Það var voldug samhringing. — Klukkan var orðin sex, það voru komin jól um gjörvalla Svíþjóð. Um kirkjuna

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.