Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.12.1936, Blaðsíða 26
416 Jón Helgason: KirkjuritifS. hjónin mjög vel yfir ferð sinni, sem þau töldu ógleym- anlega, þótt Geysir brygðist, og dáðu mjög hinar hlýju viðtökur. Alveg sérstaklega rómuðu þau fegurð Norð- urlands. Eftir heimkomuna frá Sorgenfri var ekið með okkur hátíðagesiti út um borgina, til þess að sýna okkur nokkur- ar af hinum nýju kirkjum, sem reistar hafa verið i út- hverfum borgarinnar af „Det. köbenhavnske Kirkefond“, eða að tilhlutun þess, án stuðnings af hálfu hins opin- bera. Verður það aldrei nógsamlega dásamað, hve mik- ið þessi félagsskapur, sem ekki á sinn líka í nokkuru öðru landi, hcfir afrekað síðasta mannsaldurinn, til þess að útvega liöfuðhorginni nægilega prestlega þjónustu. Að „Kirkefondet“ hefir ekki aðeins óskoraðan eignar- og afnotarétt að þessum kirkjum, sem það hefir komið upp með samskotafé, heldur og réttinn til þess að skipa presta við þessar nýju kirkjur, hefir þó verið sumum þyrnir í augum á síðari timum, og hafa þeir viljað telja siikt fyrirkomulag ósamrimanlegt þjóðkirkjuhugmynd- inni. En til þessa hefir ekki tekist að leggja hömlur á þetta starf. Fararstjóri vor út um útliverfi borgarinnar var sjálf- ur biskup Kaupmannahafnar. Fyrst var leiðin lögð út að liinni miklu Grundtvigskirkju. Hún er að því leyti ó- viðkomandi Kirkefondet, að sérstök nefnd manna, af öllum stefnum og stéttum, hefir gengist fyrir því með alþjóðar-samskotum, hvar sem dönsk tunga er töluð, að menn heiðruðu hinn mikla andans jöfur, sálmaskáldið Grundtvig, með þvi að reisa honum veglega kirkju til minningar um afrek hans og feiknarálirif lífs og liðins. Kirkja þessi er að vísu enn ekki fullger, en þess er vænzt, að takast muni að fullgera liana á næsta ári. Er gert ráð fyrir, að fullgerð muni hún kosta um 6 miljónir króna. Að útborði til er smíði kirkjunnar lokið, en að innan er allmikið ógert enn. Hún er reist í gömlum dönskum stíl — sama stíl og danskar sveitakirkjur flest-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.