Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 25

Kirkjuritið - 01.12.1936, Síða 25
Kirkjuritið. Minningarhátíð siðbót. í Danmörku. 415 enginn þeirra meira en 10—15 minútur, en með þvi að túlka þurfti ræður sumra hinna erlendu gesta, var þess- ari atliöfn ekki lokið fyr en klukkan var liálfgengin sjö. Klukkan 7 var efnt til kirkjulegs hljómleiks i Hallar- kirkjunni, sem sérstaklcga hafði vcrið boðið til. Var þar leikið gamalt „oratorium“, er nefndist L&mparnir (Lampades). Á sama tíma var siðbótarinnar minst á háskóla Kaupmannahafnar; flutti þar dr. Valdimar Am- mundsen biskup snjalt og merkilegt erindi um þýð- ingu siðbótarinnar í menningarlegu tilliti, fyrir fullu hiisi. En sá er þelta ritar komst því miður ekki á þessar samkomur, en notaði kveldstundirnar til að hvíla sig eftir erfiði dagsins, áður en gengið yrði til síðasta þátt- arins á dagskrá dagsins, en það var kveldveizla (souper) á biskupssetrinu, er hefjast skyldi kl. 9 um kveldið. Var þar svo mikill sægur gcsta saman kominn, sem biskups- setrið rúmaði — um 80 manns. — Veitingar allar voru með ágætum og dvölin liin ánægjulegasta í alla staði á heimili liinna ungu og elskulegu biskupshjóna (dr. Fuglsang Damgaard er yngstur allra dönsku biskup- anna, aðeins 46 ára, og frú hans (prestsdóttir, fædd á Grænlandi 10 árum yngri). Um kvöldið voru turnar höfuðkirkna borgarinnar skrautlýstir og var það fögur sjón. Laugardaginn 31. október ókum vér liátíðargestir kl. 11 y2 út til Sorgenfri-hallar. Var þar boð inni til morg- unverðar hjá konungshjónum. Fengum vér þar hinar ljúfustu viðtökur. Kl. 2 var snæðingi lokið, og héldu þá allir gestirnir aftur inn til borgarinnar nema sá, er þetta ritar; því að Knúlur prins vildi fyrir hvern mun sýna mér heimili sitt, sem er skamt frá höll konungs. Sat ég stundarkorn hjá þeim hjónum, og var mér síðan ekið í híl prinsins inn til Khafnar. Er heimili þessara ungu hjóna hið viðfeldnasta í alla staði, þótt ekki hafi þau mikið um sig. Við þessa samfundi á Sorgenfri var mikið rætt um íslandsförina í sumar. Létu konungs-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.