Kirkjuritið - 01.02.1939, Side 8

Kirkjuritið - 01.02.1939, Side 8
62 Sigurgeir Sigurðsson: Febrúar. yfir leiðum vors anda.“ Vér eigum ekki að láta skoðana- mismun aftra oss frá því að hjálpa livert öðru og styðja hvert annað. Vér skulum ekki dæma livert annað, vér erum svo fá fær um það. Vér eigum að fyrirgefa og hjálpa hvert öðru á réttan veg. — Kærleikurinn, þar er siguraflið .— Kærleikur Guðs — kærleikur Krists er það, umfram alt, sem gjörir tilveruna hjarta og fagra. — Ef mennirnir ættu ekki kærleika, væri lífið kalt og dimt. Mér er ljúft og finn mér skylt að láta í ljós þakklæti mitt fyrir allar hinar fögru óskir og samúð, sem ég hefi mætt á þessum tímamótum í lífi mínu og starfi. Og þá fyrst og fremst hjartanlegt þakklætimitttilsafnaðaminna, sem ég hefi starfað á meðaláundanförnum árum. Mérvarð ]>að örðugra en ég hafði gert mér grein fyrir að skilja við þá og starf mitt þar. En ég veit, að vináttuböndin, samhug- inn um áhugamálin, sem þar voru tengd, haldast áfram. Fjarlægðin milli Vestfjarða og Reykjavikur getur ekki slitið þau hönd. Litla kirkjan mín, inni milli fjallanna, og söfnuðurinn, sem guðsþjónusturnar sótti í gleði og sorg, liverfa mér aldrei úr minni. Ég þakka yður, bræður mínir í prestastétt landsins, sem sýnduð mér svo mikið traust — þakka yður allar vina- kveðjur og árnaðaróskir, svo og öll uppörvunarorðin, seni mér bárust frá yður og frá svo ótal mörgum bæði héðan úr Reykjavík og víðsvegar úr söfnuðum landsins. — Þakka hin mörgu hlýju handtök við komu mina hingað, fyrir- bænir prestanna allra hér í Reykjavík, vináttu og dreng- skap gamalla vina hér þakka kirkjustjórninni fyrir hlýjar viðtökur og síðast en ekki sizt fyrirrennara mínum í hiskupsembættinu, sem hefir komið fram við mig sem ástríkur faðir og óþreytandi er að miðla mér af víðtækri reynslu sinni og mjög mikilli þekkingu á málefnum kirkj- unnar og kristninnar i landi voru. Og svo fel ég Guði fram- tíðina. Margt getur hrugðist oss öllum í þessum heimi- Vér lifum í veröld margskonar vonhrigða. — Það er að- eins eitt, sem aldrei bregzt. Guð bregzt aldrei.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.