Kirkjuritið - 01.02.1939, Blaðsíða 36
90
Á. S.: Fyrsta doklorsritger'ð.
Febrúar.
Bók dr. Eiríks Albertssonar um Magnús Eiríksson ber
þess volt, að hann liefir verið hrifinn af viðfangsefni
sínu. Þetta er bæði kostur og galli. Kostur að þvi leyti að
bókin verður þess vegna skemtileg og læsileg, og góðii
rithæfileikar höf. njóta sín þar vel. Galli að því leyti, að
bókin verður þess vegna meir einhliða en ella mundi
sem vísindarit. Þó er það vafalaust, enda yfirlýst af and-
mælendum, að bókin átli þá viðurkenning skilið, sem felsl
i veiling doktorsnafnbótar fyrir hana.
Með ritverki þessu hefir höf. leysl af hendi afrek og
unnið sigur á þeim margliáttuðu örðugleikum, sem ein-
angrun íslenzks sveitaprests hefir lagt í götu hans. Hann
liefir reist minnisvarða manni. sem var sérkennilegur full-
trúi íslenzkrar þjóðar á sviði guðfræðinnar, og gert það
rösklega og myndarlega.
Séra Eiríkur AUjertsson er fæddur 27. nóv. 1887 á Torf-
mýri í Skagafirði. Voru foreldrar lians Albert Jónsson
bóndi og kona hans Stefanía Pétursdóttir. Hann varð
stúdent við Reykjavíkur almenna mentaskóla árið 1918
og skrásettur í guðfræðideild Háskólans sama ár. Hann
lauk guðfræðiprófi með I. einkunn 13. febr. 1917. Varð
prestur að Hesti í Borgarfirði sama ár. Hann er kvæntur
Sigríði Björnsdóttur, prests og prófasts í Viðvík.
Árni Sigarðsson.