Kirkjuritið - 01.02.1939, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.02.1939, Blaðsíða 14
68 Páll Þorleifsson: Febrúar. niun setja nierki sitt mest á niannlegt líf er baráttan fyrir því, að mannkyniö á ný komist i samband við fruni- uppsprettu sína, Guð“. Þeir tímar munu brátt koma, að liver heilbrigður mað- ur snýr í klárri fyrirlitningu baki við öllum þeim, sem gera loft alt lævi blandið af trúleysi á guðlega forsjón og kjósa sér þann ógöfuga blut, að blanda eitri vonlausr- ar lífsskoðunar i bikar barnsins og villa því sýn í sókn æðri verðmæta. Skáldið og jafnaðannaðurinn Bernard Sbaw leggui’ á það meiri og meiri áberzlu i síðari bókum sínum, að ))að sé kristindómur fyrst og' fremst, sem eigi vfir að ráða þeim smyrslum, sem mýkt geti og læknað mannleg mein. Uin ]>að segir Iiann t. d.: „Ég skal játa fúslega, að eftir að liafa brotið heilann í sextiu ár um mannlegl eðli og heim, sé ég enga leið úl úr eymd veraldarinnai' aðra en þá leið, sem Kristur sjálfur hefði valið, ef liann hefði selið að stjórn meðal þjóðanna“. Hverjum manni með heilbrigða hugsun ætti að vera það ljóst, að i baráttunni fyrir heill og velferð kynslóð- anna má hann aldrei vera hlutlaus. Og jafnframt ætti það að vera augljóst mál, að ómögulegt er að taka þátt í slíkri baráttu án þess vitandi vits og af lieilum óskipt- um lmg að skipa sér undir merki kristindómsins, þeiri'- ar stórkostlegu og fegurstu hugsjónar, sem nokkuru sinni liefir fram komið. Sá sem berst gegn kristinni lífsskoðun og þó hann sé ekki nema aðeins afskiptaláus — er hann hinn mesli níðingur gagnvart mannlegu félagi. Það er siðferðileg skvlda, sem liggur á herðum hvers manns, að hann treysti og styðji all það sannasta og mikilverðasta ' menningu sinnar þjóðar og hjálpi sem flestum til að eignast seni bezta og sannasta lífsskoðun. í bók sinni, „In the Steps of the Master“, segir Morton frá einkennilegum dansi meðal hálfvilts þjóðflokks, ei' hann sá í héraði einu handan við .Tórdan. Þeir sem tóku

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.