Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1939, Qupperneq 19

Kirkjuritið - 01.02.1939, Qupperneq 19
Kirkjuritið. Á. S.: Þorsteinn Gíslason 73 Sjálfur var Þorsteinn skáld gott, og hefir ort ^örg fögur og fáguð Ijóð. Var liann snill- ingur á mál og form ijóða sinna, smekkvís °g vandlátur við sjálf- an sig. Orti hann ljúf °g Þýð ljóð um íslenzka náttúru. Lét honum flestum betur að yrkja liátíðarljóð og tækifær- 'skvæði. Minnisstæðust verða mér jafnan há- skólaljóð hans, er á iiátíðlegan hátt lýsa innni heilögu sannleiks- leik sem er æðsta Þonteinn Gíslason. 'nigsjón allrar háskólastarfsemi. Þorsteinn var einnig ngætt sálmaskáld, og fanst i þeim sálmum, sem hann °rti, 0g raunar fleiri verkum hans, að hann var kristinn trúmaður, er tilhað hið heilaga, og unni öllu sem fvgrar lífið og gleður mennina. Má sérstaklega vænta l)ess, að vel verði leitað í skáldskap hans, þegar sálma- kók íslenzku þjóðkirkjunnar verður endurskoðuð, sem 'arla getur dregist lengi úr þessu. Minning Þorsteins Gíslasonar er minning nm þann •'iann, er átti víða yfirsýn yfir andans lönd, var hraustui i'ardagamaður meðan þess var þörf, en var þó inst í eÖli sínu hinn góðviljaði friðarins vinur, er lagði fram sínn skerf til þess að efla manndóm, menningu og trú Þjóðar sinnar. Árni Sigurðsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.