Kirkjuritið - 01.02.1939, Page 42
96
Erlendar fréttir.
Febrúar.
Séra Hólmgrímur Jósefsson
heldur nú unglingaskóla á prestsetri sinu, Skeggjastöðum i
Norður-Múlaprófastsdæmi. Nemendur munu vera 13.
Erlendar fréttir.
Biblíuvika.
Sviar hjeldu Biblíuviku 15.—22. f. m. Ýmsir ágætustu kirkju-
menn þeirra fluttu útvarpserindi um Biblíuna, skýrðu frá upp-
runa einstakra rita hennar og sýndu fram á gildi þeirra. Alt
þetta starf miðar að því, að leiða sænsku þjóðina að lindum
Guðs orðs, svo að hún sæki þangað daglega djörfung og þrótl
til eflingar trúar og siðgæðis.
Píslarvottar í Katalóníu.
Nýjustu fregnir frá Spáni herma, að stjórnárliðar í Katalóníu
hafi drepið um 2000 presta alls og a. m. k. 2 biskupa. Flestar
kirkjur þar hafa verið rændar og þriðjungur þeirra verið
brendur.
Kristniboð í Kína og Stanley Jones.
Stanley Jones hefir nýlega skrifað á þessa leið: „Ég er nýkom-
inn frá Kína, særður og hrjáður eftir stríðið. Þar er hjarta
mentaðs æskulýðs albúið þess að veita sannindum kristindóms-
ins viðtöku. Ég hefi verið í Singapore, Manila og Bangoon, og
Jmr eru fagnaðarerindinu opnaðar víðar dýr. Nú er ég aftur kom-
inn til Indlands og finn enn á ný æðaslög 00 miljóna olnboga-
barna, sem berjast fyrir þjóðfélagslegu, efnalegu og andlegu frelsi.
Augliti lil auglitis við þetta alt, er ég alsannfærður um það, að
ef kristin kirkja vaknaði við og neytti færis sins, |>á væri nú
stundin komin fyrir hana.
Séra Kaj Munk
hefir orðið við beiðni safnaðar síns og heldur prestskap áfram-
Heimsþing kristniboða,
fjölsótt og merkilegt, var haldið í Madras 13.—20. desember.
Kirkjuritið kemur út 10 sinnum á ári — alla mánuði ársins nema
ágúst og septembermánuð —- um 26 arkir alls og kostar kr. 5.00
árgangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósa held-
ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra
P. Helgi Hjálmarsson, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.