Kirkjuritið - 01.12.1941, Qupperneq 9

Kirkjuritið - 01.12.1941, Qupperneq 9
Kirkjuritið. Jólin. 399 „Það er ekki unt að bera Jesú Krist saman við stór- menni þessa heims. Hann stendur einn sér. Alt er svo ægivoldugt, að ég verð að engu frammi fyrir því.... Veldi kærleikans er vafalaust mesta kraftaverk Krists. Allir, sem trúa á hann, finna þennan kærleika — undursamlegan, yfirnáttúrlegan, hátignarfullan. Hann er undur, sem eng- inn maður getur skilið, heilagur eldur, sem þessi nýi Promeþevs hefir gefið jörðinni. Tíminn, eyðandinn mikli, getur hvorki eytt honum né reist honum neinar slcorður — það er þetta, sem mig furðar mest á, því að oft hugsa ég um það. Og það er það, sem sannar að minni liyggju ótvírætt guðdóm Krists“. Enn mun sagan halda áfram að sýna það, að Kristur lifir, ríkir og sigrar. Jólabirtan mun að lokum breiðast um a!la jörð. Allar þjóðir munu sjá Ijósið mikla og undursamlega og smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjót- um sinum, eins og Jesaja spáði. Þá munu engar hjáróma raddir framar rjúfa engla- lofsönginn: Dýrð sé Guði i upphæðum, friður á jörðu og velþóknun yfir mönnunum. Gleðileg jól, í Jesú nafni. Ásmundur Guðmundsson.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.