Kirkjuritið - 01.12.1941, Side 14

Kirkjuritið - 01.12.1941, Side 14
404 Þórir Bergsson: Desember. að ræða slíka fjarstæðu. — Þér verðið ]iá að bíða, lierra prófessor, sagði postulinn mikli og andvarpaði, — og reyna að láta fara eins vel um yður og unt er, liérna utan við Himnaríki, á meðan þér eruð að hugsa yður um. — Eftir það gekk Sankti Pétur aftur inn fyrir, hann sárvor- kendi prófessornum, því að hann vissi, að þetta var í raun- inni allra bezti maður og prýðilega vel að sér í rökfræði. Svo var það, eftir hádegið, þegar liinn heilagi Pétur dott- aði í stólnum, að Markús leit upp úr hókum sínum og sá, hvar lítill, stríðhærður, grannur karl, úlfgrár á liár og skegg, kom neðan að og fór hægt. Hann var með stafprik í hendi og var stinghaltur á vinstra fæti. Þegar hann kom heim undir hlið Himnaríkis, staðnæmdist hann undrandi, og starði á nálaraugað. — Svo fór hann að líta eftir því, hvort ekki væri annar inngangur í Himnaríki, en sá auð- vitað ekkert annað en hinn mikla múr, sem aðskilur hinn jarðneska heim frá hinum guðdómlega. Hann rjálaði lítið eitt við nálaraugað með staf sínum, staklc broddinum á stafnum inn í augað; hristi svo höfuðið og gekk af stað frá hliðum himnanna aftur. — Markús sá, að við svo búið mátti ekki standa, hann fann það á sér, að hér þurfti eitt- hvað við að gera. — Heilagi postuli! sagði hann. — Hinn heilagi Pétur brá þegar blundi og leit upp. — Hvað er nú um að vera? spurði hann, — en sá þegar manninn, er staulaðist niður eftir. Eins og tvítugur unglingur liljóp Sánkti Pétur út fyrir og kallaði: — Ingjaldur, Ingjaldur! — Ingjaldur leit við og sá Pétur. — Hvert ertu að fara, maður? sagði postulinn. — Einhvers staðar verða vondir að vera, sagði Ingjaldur, en kom nú aftur til Péturs. —■ Ég sé hvergi neinar dyr á þessum múr, og livað var þa annað að gera en leita niður á hóginn? Ég hefi aldrei haft tíma til þess á æfinni að bíða. — 0, eklci lá nú lífið á því, svaraði Pétur, þú munt þó alténd liafa séð nálaraugað? — Jú, jú, sagði Ingjaldur. -— En segðu mér, Pétur, komst þú út um það?

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.