Kirkjuritið - 01.12.1941, Qupperneq 18
Desember.
Nýr heiðursdoktor í guðfræði.
Séra Bjarni Jónsson vigslubiskup átti sextugsafmæli 21.
okt. síðastj., og sá þá margan vott vinsælda þeirra og
virðingar, er hann nýtur. Meðal annars færðu safnaðar-
menn lians honum að gjöf fjárliæð, er liann slcyldi verja
á sínum tíma til Jórsalafarar, eða á annan þann liált, er
liann lcysi lielzt. Guðfræðideild Háskólans lcjöri hann að
lieiðursdoktor, og fer liér á eftir greinargerð hennar:
Guðfræðideild Háslcóla íslands liefir á fundi sinum í
dag lcjörið séra Bjarna Jónsson vígslubiskup doctor tlieo-
logiæ lionoris causa, með eftirfarandi greinargerð:
„Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup liefir nú um nær ald-
arþriðjung gegnt prestsembætti í langf jölmennasta og uni-
svifamesta prestalcalli landsins, Dómkirkjuprestalcalli
Reykjavíkur, og leyst það starf af hendi með þeirri sæmd,
sem landskunn er. Hefir liann á þessum starfstíma vafa-
laust unnið fleiri prestsverlc, bæði opinberlega og einslega,
en nokkur annar prestur á íslandi fyr eða síðar. Aulc þess
liefir hann unnið mjög mikið lcristilegt starf, ljæði í K.F.
U.M. og víðar, og einnig starfað og lialdið fyrirlestra er-
lendis, sérstalclega í Danmörku, livað eftir annað.
Séra Bjarna Jónssyni hefir eklci unnist tími til visinda-
legra ritstarfa með þeim óvenju miklu störfum, sem á
hann bafa lilaðist, en þó liafa birzt eftir bann ritgerðir
í kirkjulegum Jjlöðum og tímaritum, bæði liér og erlendis.
En guðfræðideildinni er það kunnugt, að liann er maðui'
mjög vel Jærður í guðfræði, enda hefir hann verið pi'óf-
dómari hennar við embættispróf í guðfræði frá því er
báslcóli vor var stofnaður. Hann er áhrifamilcill prédikari
og fyrirlesari og yfirleitt hinn ágætasti kennimaður og
andlegur leiðtogi jafnt utan kirkju sem innan.
Þessa mikla og vel unna starfs í þjónustu íslenzkrar
kristni vill guðfræðideild Háskóla íslands minnast á 60.
afmælisdegi séra Bjarna Jónssonar, með því að sænia
liann sínum hæsta heiðri.“