Kirkjuritið - 01.12.1941, Page 21
KirkjurítiS.
Höfuðdrættir í æfi Jesú.
411
fregn, að allir séu að spyrja eftir honuin, ])á fá þeir að
vita, sér til mikillar undrunar, að Jesús ætli ekki að halda
starfinu áfram á sama hátt og hingað til, en héðan af
að gera prédikunarstarfið að aðalstarfi sínu „því að til
þess sé hann útgenginn“ (Mark. 1, 38). Hann liverfur því
ekki aftur til Kapernaum, en leggur á stað í prédikunar-
leiðangur. Sem farandprédikari fer liann nú hoðandi
fagnaðarhoðskap ríkisins bæ úr bæ. Hvar, sem liann nær
til fólks, tekur hann óðar til máls: í samkunduhúsum og
liúsum einstakra manna, úti á viðavangi, uppi á fjöllum,
úti í óbygðum, jafnvel i bátum úti á Genesarelvatni, í fá-
menni og margmenni — i fæstum orðum: Alstaðar þar,
sem tækifæri gefst, boðar liann mönnum leyndardóma
Guðs ríkis. Svo mikil var aðsóknin, að Jesús fékk ekki einu
sinni tíma til að matast. Sjálfur var liann svo altekinn af
starfi sínu: að liann gleymdi öllu öðru. Nánustu ástvinum
hans, móður hans og hræðrum, verður þetta hrátt hið
mesta áhyggjuefni. Þau skilja ekki, að nokkur geti orðið
svo altekinn af starfi sínu, og skoðuðu það jáfnvel sem
vott þess, að hann væri ekki með sjálfum sér (Matt. 3, 21)
og „vildu taka hann“. En Jesús lét sér ekki segjast við það.
Þar hafði enginn neitt yfir honum að bjóða nema faðir-
inn einn.
Jesús mun brátt hafa séð, að einn gæti hann ekki annað
öllu því starfi, seni hér beið lians á „mannökrum hvítum til
uppskeru“. Hann hafði því úr lærisveinahópnum valið
nokkra, er hann treystir bezt og sent þá sein trúboða út
um bygðir landsins með guðsríkisboðskap sinn, líklega þó
fremur til reynslu en af því að hann ætlaði þeim að starfa
jafnhliða sér nú þegar, enda heyrum vér þess ekki getið
nema þetla eina skipti, að hann sendi þá frá sér i þeim
erindum að starfa á eigið eindæmi. Ræðan, sem hann kveð-
ur þá með áður en þeir leggja af stað, er ein af dýrustu
perlum, sem guðspjöll vor geyma af því tæi. Hún sýnir
oss fyrst og fremst hinn óviðjafnanlega mannkostamann,
þar sem haldast í hendur ástúð og ráðspeki, kraftur og