Kirkjuritið - 01.12.1941, Page 32

Kirkjuritið - 01.12.1941, Page 32
422 Höfuðdrættir í æfi Jesú. Desember. sínum á Golgata-hætS. Þjóðin, sem liann unni svo heitt ög hafði svo innilega þráð að hjálpa, hefir útskúfað hon- um og snúið haki við honum full gremju og vanþakk- lætis, og vinirnir, sem hönum hafði verið svo einkar ant um og hann hafði sýnt svo mikla ástúð, liafa hrugðist honum algerlega; einn þeirra liefir jafnvel orðið til að svíkjá hann í hendur fjandmanna hans og allir hinir flúið á hætturnar stundu og skilið liann eftir einan í óvina liöndum. Er hægt að hugsa sér öllu meiri ósigur? Og [>ó var hér á hinn hóginn um hinn mesta signr að ræða, því að í öllu, sem fram við Jesúni kemur, hregst hann ekki eirini einustu hugsjóna sinna, sem hann hafði harist fyrir og brýnt fyrir öðrum. Hann gefur sig allan og algerlega, fórnar sjálfum sér svo fullkomlega sem auðið er fyrir það heilaga málefni, sem liann hafði helgað líf silt. Ósigur hans breytist við það eitt í liinn mesta sigur, ekki aðeins fyrir málefni hans, heldur og fyrir hann sjálfan persónulega. Slíkur dauði sem hans gat með engu móti orðið hans hið síðasta. Á eftir slíkum langafrjádegi lilaut að koma dýrlegur páskamorgunn, er hoðaði öllum heimi sigur lífsins yfir dauðanum, ljóssins yfir myrkrinu, rétt- lætisins yfir ranglætinu! Minningarguðsþjónusta. Guðsþjónusta var haldin í Dómkirkjunni á árstíð Hallgríms Péturssonar, 27. okt., að viðstöddu fjölmenni. Prófessor Magnús Jónsson flutti fyrst erindi um Hallgrím. Því næst liófst liátíða- niessa i því formi, sem tíðkaðist hér á landi á 17. öld, og voru víxlsöngvar og tón úr grallaranúm gamla. Séra Sigurhjörn Ein- arsson þjónaði fyrir altari, en séra Jakob Jónsson prédikáði og lagði út af Hebr. 13, 7. Sálmar og vers voru eftir Haligrím. Öll var guðsþjónusta þessi hátíðleg. Hallgrimssöfnuður sá uni hana, og mun ætlun lians sú að gjöra þennan dag að kirkju- degi síiium, og þá í fyrstunni einnig að fjársöfnunardegi fyrir kirkjh þá, er liann liygst að reisa á Skólavörðuhæðinni.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.