Kirkjuritið - 01.12.1941, Blaðsíða 36

Kirkjuritið - 01.12.1941, Blaðsíða 36
Desember. Biðjið og yður mun gefast. Prestshjónin frá Holti nndir Eyjafjöllum komu til mín 31. okt. s.l., og barst þá talið a'ð bréfi því, er hér fer á eftir, og þeim atburðum, sem það skýrir frá. Kom okkur saman um, að rétt væri, að fleiri vissu. Því er bréfið birt liér, þótt það sé einkabréf til mín. Prestsfrúin las það og staðfesli frásögnina í öllum greinum. Kvaðst hún aðeins vilja bæta því við, að að- faranótt fjórða dags eftir páska liefði hún séð liendur lagðar á brjóst sér og fundið straum frá þeim fara um sig. Á. G. Holti undir Eyjafjöllum, 16/4 ’41. Háttvirti prófessor, góði vinur minn! Ég var á ferðinni í Reykjavík á dögunum og ætlaði vissulega að koma lil þín. En óvænt fregn í því ferðalagi gerði mig tæplega mönnum sinnandi, og ég liafði mig ekki upp í það að líta inn til þín. Konan inín liafði legið veik í mánuð með háan hita — og hafði æxli myndast liægra megin í kviðarholi hennar, sem vel var finnanlegt. Þegar hitinn lækkaði heldnr, fór ég með Iiana suður til rannsóknar. Að rannsókninni lokinni fékk ég þá tilkynn- ingu hjá viðkomandi lækni, að ekkert væri liægt að gera fyrir hana. Uppskurður væri í mesta máta vafasamur. Þau voru erfið sporin mín í Reykjavík þessa daga, eins og þú skilur, vinur minn. Aldrei eins erfið og þá. — Þetta voru sameiginlegar raunastundir okkur báðum, því að ég sagði henni eins og var. Hún bað mig þess. — Að úr- skurðinum fengnum, hröðuðum við okkur heim. — En — í þessum erfiðleikum okkar skein okkur þó hjart ljós, ljós trúarinnar á almætli Guðs og líknarhendur liins upp- risna, lifandi frelsara. Við snerum okkur til hans í fulhi trausti þess, að máttur hans væri óendanlega miklu meiri en mannlegur máttur. Orð lians og fyrirheit: „Riðjið og yður mun gefast“, og „sá getur alt, sem trúna hefir“ hafa

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.