Kirkjuritið - 01.09.1948, Blaðsíða 56
230
KIRKJURITIÐ
biskups og sálmaskálds, er var einn af hinum ágætustu þjón-
um íslenzku kirkjunnar á sinni tíð og bæði hún og þjóðin öll
stendur í þakkarskuld við fyrir sálma hans, sem margir eru
meðal hinna fegurstu perla í íslenzkum sálmakveðskap. Þessa
merkilega aldarafmælis var minnzt í öllum prestaköllum lands-
ins, samkvæmt tilmælum mínum þar um. Og í Stóra-Núps-
kirkju, þar sem séra Valdimar þjónaði um langt skeið, var
haldin sérstök hátíðaguðsþjónusta þenna dag. Var ég þar
staddur og flutti minningarræðu um þetta ástsæla skáld og
kirkjuhöfðingja.
Þá hefi ég lauslega drepið á það helzta varðandi störf og hag
íslenzku kirkjunnar á umliðnu sýnódusári. Ýmislegt fleira
hefði vafalaust mátt drepa á, en til þess vinnst ekki tími að
þessu sinni. Skýrsla um messugjörðir og altarisgöngur verður
lögð fram síðar í dag eða á morgun, og gefst yður þá færi á
að kynna yður þær hliðar starfsins.
Með þeirri ósk, að starf íslenzku kirkjunnar megi blómgast
og vaxa og verða þjóðinni til æ meiri blessunar, lýk ég svo
máli mínu og bið algóðan Guð að vaka yfir kirkju sinni, starfs-
mönnum hennar og söfnuðum nú og æfinlega.
Yfirlit um mál prestastefnunnar og samþykktir.
Biskup lagði fram skrá yfir messugerðir og altarisgöngur
árið 1947. Guðsþjónustur þjóðkirkjunnar voru samtals 3780,
en altarisgestir um 6000.
Enn fremur var lögð fram skrá um úthlutun styrktarf jár til
prestsekkna og fv. presta. Var úthlutað kr. 31.100.00 til 8 fv.
presta og 42 prestsekkna.
Að lokinni skýrslu biskups hófust umræður um aðalmál
prestastefnunnar að þessu sinni, Kirkjuþing. Prófessor Ás-
mundur Guðmundsson hafði framsögu og lagði fram frum-
varp til laga um kirkjuþing íslenzku þjóðkirkjunnar. (Frum-
varp þetta er prentað í Kirkjublaðinu 12. júlí). Var umræðum
um málið haldið áfram næsta dag. Tjáðu prestarnir sig ein-
dregið fylgjandi málinu, en töldu hinsvegar æskilegt, að það
yrði frekar athugað og undirbúið áður en það yrði lagt fyrir
Alþingi. Var í því skyni kjörin 5 manna nefnd, er skila skyldi
áliti sínu um frumvarpið fyrir næsta Alþingi, og eiga sæti í