Kirkjuritið - 01.09.1948, Blaðsíða 39
PRESTASTEFNAN 1948.
Prestastefnan sett.
Prestastefna íslands var haldin 1 Reykjavík dagana 20.—22.
júní. Var hún hin f jölsóttasta prestastefna, sem háð hefir ver-
ið hér á landi á síðari árum. Hana sátu um 90 prestvígðir
menn, þegar flest var.
Hún hófst sunnudaginn 20. júní með guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni, og var þeirri athöfn útvarpað. Dr. Bjarni Jónsson
vígslubiskup var fyrir altari, en séra Valdimar J. Eylands
prestur að Útskálum steig í stólinn og flutti snjalla ræðu.
Prestamir mættu flestir í skrúða. Guðsþjónustunni lauk með
altarisgöngu prestanna.
Kl. 4 e. h. var prestastefnan sett með virðulegri athöfn í
kapellu Háskólans. Að því loknu var fundur settur í hátíðasal
skólans. Biskup ávarpaði prestana og skýrði frá helztu at-
burðum á liðnu sýnódusári. Fara ávörp hans og skýrslur hér
á eftir.
Ávarp biskups.
Kæru starfsbræður.
Ég fagna því, að oss, sem erum starfsmenn í kirkju
Islands, gefst enn tækifæri til að hittast, ræðast við og
ráða ráðum okkar, um þau mál, sem brýnust eru allra
í þjóðlífi voru. Það, sem máli skiftir, og það, sem mestu
veldur um líðan mannkynsins, er afstaða þess til Guðs
°g vilja hans.
Samkvæmt uppruna kirkjunnar og eðli er það hennar
tnikla hlutverk að birta mönnum, hver sé vilji Guðs og
kenna þeim að lúta honum. Og vér prestar erum sérstak-
lega vígðir til þessarar þjónustu. Kristur sagði: „Þér er-
uð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.“ (Jóh.