Kirkjuritið - 01.09.1948, Blaðsíða 72
BÆKUR
Víðförli. Tímarit um guðfræði og
kirkjumál. Ritstjóri Sigurbjörn
Einarsson, 2. árg. 1. hefti.
„Helgafell“ sendir nú Kirkjuritinu þetta tímarit í fyrsta
sinni.
Ritstjórinn skrifar forystugrein um einingarviðleitni kirkj-
unnar, og er þess full þörf. Hefir Kirkjuritið einnig rakið
áður þátt úr þeirri sögu. í niðurlagi greinarinnar er vitnað í
ummæli um það, að kirkja Vesturlanda flytji nú annan boð-
skap en kirkja 19. aldar gerði, þ. e. boðskapinn um Jesú Krist
hinn krossfesta og upprisna Drottin kirkjunnar. Þykja höfundi
þetta merkileg orð og verð þess að hljóta áheyrn á íslandi.
En ekki minnist ég, að prestar 19. aldar, sem ég þekki til,
hafi hvikað frá boðskapnum um Drottin Krist, krossfestan
og upprisinn. Sálmabókin 1886 er yfirleitt gott vitni í þessu
máli. Niðurlagsorð greinarinnar eru þessi:
„Togstreitan í kirkjumálum íslands, hið sérstaka „ökumen-
iska“ vandamál vort, lifir eins og hver annar innyflasýkill í
ónáttúrlegri innilokun og ómáttugleik til þess að koma
frá sér trúarlega ómeltanlegum úrgangi myglaðra skólabóka."
Séra Jóhann Hannesson skrifar um Anders prófessor Nygren
og guðfræði hans. Tekur hann upp kafla úr bók hans: Eros og
agape, og munu flestir lesendur lítt fylgjast með, enda vantar
framhald á greininni.
Séra Stefán Eggertsson ritar um búnað kirkna. Upphaf
greinarinnar mun áður komið, en niðurlag vantar. Næst er
fyrirlestur Kanaars læknis, sem fluttur var í útvarp síðast-
liðinn vetur, og margir munu kannast við.
Þá taka við 3 mjög læsilegar greinar, eftir Jón Gunnlaugsson
stjórnarráðsfulltrúa, séra Þorstein Björnsson og séra Gunnar
Jóhannesson.
Ytri frágangur á ritinu er snotur og prófarkalestur mjög
sæmilegur.