Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 69
SKIPUN PRESTAKALLA 235
1 prestakallaskipunarnefnd,
Sveinbjörn Högnason Ásmundur Guömundsson
formaöur nefndarinnar
Ingimar Jónsson PáU Zóphóníasson
með fyrirvara
Pálmi Einarsson Siguröur Bjarnason
Sveinn Víkingur
ritari nefndarinnar.
Samþykkt KirkjuráSs 27. sept.
Kirkjuráðið lýsir ánægju sinni yfir því verki, sem prestakalla-
skipunarnefndin hefir unnið, og frumvarpi því til laga um presta-
kallaskipun landsins, sem orðið hefir niðurstaða af störfum hennar.
Telur kirkjuráðið sig í öllum höfuðatriðum samþykkt frumvarpinu,
Pdtt ýmislegt sé, sem einstakir meðlimir kirkjuráðsins hefðu kosið
á annan veg, og rætt mun verða við nefndina af forseta ráðsins.
vill kirkjuráðið taka það fram og leggja áherzlu á, að það telur
að mjög varhugavert sé að leggja niður prestaköll í dreifbýlinu,
Jafnvel þótt fámenn séu, ekki sízt þar, sem vilji fólksins bendir ein-
aregið til, að því sé mjög óljúft að verða svipt presti sínum.
_ Enn vill kirkjuráðið leggja áherzlu á ,að það telur fjölgun presta
1 þéttbýlinu ekki aðeins mikilvæga, heldur óhjákvæmilega, og þakk-
ar nefndinni þá stefnu, er hún hefir tekið í því efni.
Samþykkt stjórnar Prestafélags íslands 30. sept.
Stjórn Prestafélags Islands hefir athugað frumvarp prestakalla-
skipunarnefndar og telur það vera eftir atvikum til mikilla bóta.
Lýsir prestafélagsstjórnin yfir stuðningi sínum við þá meginstefnu
ttffndarfrumvarpsins, að haldið sé í horfi um starfsmannalið þjóð-
kirkjunnar, enda sýnist ekki geta komið til mála að fækka starfs-
niönnum hennar jafnhliða því, sem þjóðinni fjölgar. Jafnframt vill
Pfestafélagsstjórnin taka það fram, að hún er mótfallin svo mikilli
fækkun prestakalla x sveitum, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, og
v*ntir þess, að Alþingi sjái sér fært að bæta um það samkvæmt
r°kstuddum tillögum hlutaðeigandi aðilja.