Kirkjuritið - 01.09.1951, Blaðsíða 76
242
KtRKJURITIÐ
er að flestu leyti rótlaust og ógæfusamt fólk, þrátt fyrir allar
framfarir í lífsþægindum og yfirborðsmenningu. Menn eru
búnir að missa trúna á öll verðmæti í lífinu, hin efalausa guðs-
trú fyrri alda er horfin hjá flestum, og heimspeki og náttúru-
vísindi hafa á engan hátt getað skipað sess trúarinnar, enda
sjálf á hverfanda hveli. Menn finna hvergi fastan punkt í líf-
inu, hvergi neitt, sem geti sefað hinn nagandi efa og tómleik-
ann og tilgangsleysið. Margir reyna að festa hugann við nautn-
ir líðandi stundar og kæra sig kollótta um allt annað, en
mörgum fullnægir þetta ekki. Þeir þrá einhverja festu í lífinu,
eitthvað, sem þeir geta trúað á með bamslegri og efalausri
trú, eitthvað, sem þeir geta varpað öllum sínum áhyggjum á
og losað þá við martröð efans. Það er þessi kennd, sem hefir
rekið marga yfir til kommúnismans.“
•
Allir prestar ættu að kaupa eitthvert útlent trúmálablað eða
tímarit, og sumir kaupa þau eflaust fleiri en eitt og fleiri en
tvö. En oft er vandi að velja, því að margt er á boðstólum
síðan innflutningurinn varð aftur frjáls. Norska ritið „Kirke
og Kultur" er ágætt rit. Það er meira en hálfrar aldar gamalt.
Ritstjóri þess er Eivind Berggrav. Það kemur út mánaðarlega,
64 síður í hvert sinn, og kostar 15 krónur norskar á ári. Af
því, sem kom í ritinu á fyrra helmingi þessa árs, má nefna
þessar greinar: „Ber maðurinn ábyrgð á verkum sínum“?
„Maðurinn og vinnan“, „Kristindómur og réttur“, „Er sál okk-
ar ódauðleg? “ o. fl. o. fl. í hverju hefti eru allmargar bóka-
fregnir.
•
í marzheftið af „Kirke og Kultur" skrifar ritstjórinn um
bók eftir Douglas Hyde, ritstjóra aðalmálgagns kommúnista
í Bretlandi, sem sagði skilið við kommúnismann eftir 20 ára
þjónustu. Bók þessi kom út 1950. Hún virðist vera hin merk-
asta heimild um það, hvemig sanntrúaður kommúnisti losnar
úr álögunum og brýtur flokksfjötrana. Niðurlagið á grein
Berggravs um bók þessa er þannig í lauslegri þýðingu:
#
„Það er eftirtektarvert, að D. Hyde skoðar ekki fátæktina
sem mestu driff jöðrina fyrir kommúnismann. „Eymdin og órétt-