Kirkjuritið - 01.09.1951, Blaðsíða 27
PRESTASTEFNAN 1951
193
Ur>ar Guðs, bið ég yður að votta þeim þakkir yðar og virðingu
með því að rísa úr sætum.
I hóp þjónandi presta hafa bætzt þrír ungir menn á árinu,
þannig að tala prestanna er hin sama og síðastliðið vor, eða
alls 101.
Séra Gísli Halldórsson Kolbeins er fæddur í Flatey á Breiða-
firði 30. maí 1926, sonur séra Halldórs E. Kolbeins, er þá var
þar prestur og konu hans Láru Ágústu Ólafsdóttur. Hann
lauk stúdentsprófi við menntaskólann á Akureyri vorið 1947
°g embættisprófi við Háskóla islands vorið 1950. Vígður 30.
iúlí til Sauðlauksdals sem settur prestur og hefir gegnt því
starfi síðan.
Séra Kristján Róbertsson er fæddur að Hallgilsstöðum í
^njóskadal 29. apríl 1925. Foreldrar hans eru Róbert Bárðdal
bóndi þar og kona hans Herborg Sigurðardóttir. Lauk
stúdentsprófi úr menntaskóla Akureyrar 1947 og embættis-
Prófi við Háskóla íslands vorið 1950. Vígður 30. júlí til Sval-
þarðsþinga, sem settur prestur, og fékk veitingu fyrir því
kalli frá 1. ágúst 1950. Hann er kvæntur Margrétu Ingólfs-
dóttur.
Séra Magnús Guðmundsson er fæddur í Reykjavík 29. jan.
ÍS25, sonur Guðmundar Magnússonar dyravarðar og konu hans
^elgu Jónsdóttur. Lauk stúdentsprófi úr menntaskólanum í
^■eykjavík 1945, og var síðan við nám í Svíþjóð og Noregi
Urn hríð. Innritaðist í Guðfræðideild Háskólans 1947 og lauk
þaðan embættisprófi vorið 1950. Vígður 30. júlí s. á. til ögur-
þ'ftga sem settur prestur, og hefir nýlega verið skipaður sókn-
arprestur þar.
hessa ungu og efnilegu menn býð ég hjartanlega velkomna
1 starfið og áma þeim heilla og blessunar Guðs í hinu mikil-
Væga starfi þeirra.
Aðrar breytingar á embættisskipun innan kirkjunnar eru
þessar:
Séra Kristján Róbertsson var skipaður sóknarprestur í Sval-
barðsþingum hinn 7. sept. 1950.
Séra Óskar J. Þorláksson sóknarprestur á Siglufirði var
skipaður sóknarprestur í Dómkirkjuprestakalli í Reykjavík
tonn 28. maí 1951.