Kirkjuritið - 01.09.1951, Blaðsíða 75
S AMTÍNIN GUR
241
blaðsins til málefna kirkjunnar ekki sízt vera að þakka Hall-
dóri Kristjánssyni frá Kirkjubóli, sem undanfarin ár hefir oft-
ast unnið við Tímann.
#
í byggðarlagi einu í Sviss er mótmælendasöfnuður — fá-
mennur — kringum 100 manns. En söfnuðurinn þurfti að eign-
ast sína eigin kirkju, og áður en búið var að reikna út kostn-
aðinn og útvega nægilegt fé, var byrjað að byggja. Þessvegna
lenti söfnuðurinn í fjárþröng og byggingin strandaði á féleysi.
En þá gerðist það, sem gerir þessa kirkjubyggingu í frásögur
færandi. Kaþólikkar hlupu undir bakka og hjálpuðu mótmæl-
endum til að fullgera kirkjuna.
*
Búnaðarmálastjóri spjallaði um heyskaparhorfur í útvarpið
áður en slátturinn hófst í sumar. í erindi sínu vitnaði hann
í tvo presta á Suðurlandi, sem hann taldi að væru til fyrir-
myndar í búskapnum. Heyrt hefi ég, að prestur einn í Árnes-
sýslu hafi átt bezta súgþurrkaða heyið, sem skoðað var á út-
mánuðum 1950. Bendir þetta til, að enn séu allgóðir búmenn
í Prestastétt, eins og löngum hefir verið.
#
Biblían hefir nú verið þýdd á 1055 tungumál, sem töluð eru
af 95% af íbúum jarðarinnar. En fyrir æðimörgum er samt
Biblían ennþá lokuð bók, því að einungis 40% af mannkyn-
mu kann að lesa.
#
Á s.l. ári sendi sænskur læknir kæru á biskupinn Bo Gierts
til heilbrigðisyfirvaldanna. Kæruefnið var barnalærdómsbók
biskupsins — „Grundvöllurinn“. Taldi læknirinn, að í henni
v®rU ýms ummæli í sambandi við sekt, ábyrgð og dóm, sem
gætu verið hættuleg andlegri heilbrigði barnanna. Eftir all-
langt vafstur komst málið til innanríkisráðuneytisins, sem
skyldi kveða á um, hvað gera skyldi. Ráðuneytið taldi kæruna
^uað öllu ástæðulausa og vísaði málinu frá.
•
Ölafur Hansson menntaskólakennari ritaði um bókina „Guð-
lnn> sem brást“ s.l. vetur. Þar segir svo: „Fólk 20. aldarinnar