Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1954, Qupperneq 31

Kirkjuritið - 01.05.1954, Qupperneq 31
Séra Hálfdan Helgason, prófastur að Mosfelli. Séra Hálfdan Helgason prófastur að Mosfelli andaðist ^eð sviplegum hætti, er hann var á leið heim til sín, 8. aPríl síðastliðinn, og kom andlátsfregn hans eins og reiðar- slag yfir alla, því að fæstir vissu annað en að hann væri heill heilsu. Séra Hálfdan var í þennan heim fæddur 23. júlí 1897, og var því 56 ára, 8 og hálfs mán- aðar gamall, er hann var héðan kvaddur. Af þessum tíma hafði ág meiri og minni kynni af hon- um rúm 50 ár. Bjó ég um nokk- urt skeið á heimili foreldra hans, er hann var 6 ára, fjörmikill strákur, fyndinn í tilsvörum og kom fullorðna fólkinu oft til að hlæja. Fylgdi þetta honum alla Hálfdan Helgason prófastur. æfi. Æskuheimili séra Hálfdanar var stórt og glæsilegt, i Samla húsinu við Bankastræti, embættismannsheimili, eins °g þau höfðu þá verið um langt skeið. Foreldrar hans, Jón hlelgason, þá dócent og síðar lector Prestaskólans, og frú ^arta María bjuggu þar með börnum sínum, er þá voru 4. en urðu alls fimm. Var Hálfdan næst elztur barnanna. Þetta heimili fluttist síðar í Tjarnargötu, og heyrði ég Sera Hálfdan tala um það sem „gamla heimilið". Það varð að nokkurs konar þungamiðju, er niðjarnir tóku að dreif- ast, og áhrifin þaðan voru sterk og heilbrigð.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.